Author: blues

  • Blús á heimsmælikvarða! Miðasala er á midi.is

    Blús á heimsmælikvarða! Miðasala á midi.is hér
    Á Blúshátíð í Reykjavík koma fram alþjóðlegar blússtjörnur og íslenskir snillingar sem gera dymbilvikuna að fjörugustu og skemmtilegustu viku ársins.

    Larry McCray, einn allra besti blúsari Bandaríkjanna er aðalgestur hátíðarinnar og gítarleikarinn Laura Chavez mætir loksins á Blúshátíð eftir nokkurra ára bið en hún er komin í úrvaldeild alþjóðlegra blúsara. Laura kemur með söngkonuna Inu Forsman sem er að gera allt vitlaust um þessar mundir.

    Blúsmiðinn veitir aðgang að öllum stórtónleikum og er hugsaður fyrir þá sem vilja drekka í sig hvern tón á stóra sviði hátíðarinnar og upplifa galdurinn á blúsklúbbnum þegar hið fullkomna frelsi tekur við. Á klúbbnum er djammað fram undir morgun.

    Blúshátíð í Reykjavík kemur bæði með vorið og gleðina.

    Hér er Larry McCray að spila með Jools Holland

     

    Blúshátíð í Reykjavík 27. til 29. mars.

    Á Blúshátíð í Reykjavík 2018 verða þrennir stórtónleikar á Hilton Reykjavík Nordica í dymbilviku, á þriðjudags- miðvikudags- og fimmtudagskvöld:

    Blúsmiðinn veitir aðgang að öllum þremur stórtónleikunum á Hilton Reykjavík Nordica. Tryggðu þér Blúsmiða.

    Stórtónleikar þriðjudaginn 27. mars kl. 20.00.

    Laura Chavez og Ina Forsman – Beggi Smári og Nick Jameson – Blúsaðasta band Músíktilrauna

    Stórtónleikar miðvikudaginn 28. mars kl. 20.00.
    Larry McCray og The Blue Ice band – Langi Seli og Skuggarnir – Lúðrasveitin Svanur

    Stórtónleikar fimmtudaginn, 29. mars, kl. 20.00.
    Lokakvöld.

    Íslenskur blús í hæsta gæðaflokki.

    Blues_2018_poster_web

  • Sendið tillögur um heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur 2018 fyrir framlag sitt til blústónlistar .

    Sendið tillögur um heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur 2018 fyrir framlag sitt til blústónlistar á blues@blues.is merkt heiðursfélagi 2018.

    Hver verður fyrir valinu ? .

    Blúshátíð kemur með vorið. 24 mars kl 14 verður Blúshátíð í Reykjavík 2018 sett með látum, hamingju, bílum, baconi og blús á Skólavörðustígnum Við heiðrum blúsmann/konu og gerum að heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur fyrir framlag sitt til blústónlistar leysum heiðursfélaga út með gjöfum og alls konar.skemmtilegu.

    Miðasala á aðalsviðið hér: https://midi.is/tonleikar/1/10385/Blushatid_2018

    Blúsmiðinn veitir aðgang að öllum þremur stórtónleikunum á Hilton Reykjavík Nordica. Takmarkað magn í boði. Tryggðu þér miða.

    Magnús Eiríksson var heiðraður 2004 , Björgvin Gíslason 2005 , Andrea Gylfadóttir 2006. Krístján Kristjánsson 2007, Ásgeir Óskarsson 2008, Pinetop Perkins 2009, Deitra Farr 2010, Guðmundur Pétursson 2011, Pétur Tyrfingsson 2012. Halldór Bragason 2013. Jón Ólafsson 2014. Sigurður Sigurðsson 2015. Chicago Beau Lincoln T Beauchamp Jr. 2016, Birgir Baldursson 2017.

    17862333_10155183513662905_8893258107641390957_nBirgir Baldursson, heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur 2017, var heltekinn af trommuleik strax fjögurra ára gamall og og hefur slegið taktinn síðan. Fyrst urðu húsgögnin á heimili hans fyrir barðinu á honum, einnig lampar og ljós, en fljótlega fékk hann trommur og fór að spila með skólahljómsveit Kópavogs 10 ára gamall. Hann hefur spilað með hjómsveitum á borð við S.H. Draumum, Bless, Sálinni Hans Jóns míns, Mannakornum, Kombóinu, Blúsmönnum Andreu, Unun, Dr. Gunna, Blue Ice Band mörgum fleirum. Hann hefur leikið inná tugi hljómplatna, unnið við kvikmyndatónlist, í leikhúsum og við söngleiki, svo eitthvað sé nefnd. Birgir hefur verið einn af merkisberum blústónlistarinnar hérlendis undanfarin ár .

    logosupa

     

  • Sjálfboðaliðar Blúshátíðar. Það vantar alltaf fleiri blúshendur við gerum heiminn betri með blús. Vertu með í liðinu á Blúshátíð í Reykjavík 2018

    Hér tökum við á móti skráningum frá þeim sem vilja leggja sitt af mörkum til hátíðarinnar með því að gerast sjálfboðaliðar.

    Sjálfboðaliðar Blúshátíðar eru margir og sinna alls konar afar skemmtilegum störfum.

    Öllum sem lagt hafa okkur lið eru færðar hjartans þakkir fyrir óeigingjarnt framlag og fórnfúst starf á undanförnum árum.

    Það vantar alltaf fleiri blúshendur! Jákvæðni ,bjartsýni, gaman er fyrir vini eða vinkonur að koma saman í þetta.

    Sendið okkur línu á bluesfest@blues.is og við verðum í bandi

    Nafn:

    Aldur:

    Netfang:

    Sími:

    Um mig:

    oskar

     

     

     

     

     

     

     

  • Miðasala á midi.is. Blúshátíð í Reykjavík 2018

    Miðasala er hafin á midi.is hér https://midi.is/concerts/1/10385/Blushatid_2018

    Blues2018-facebook-timeline

    Blúshátíð í Reykjavík 27. til 29. mars.
    Á Blúshátíð í Reykjavík 2018 verða þrennir stórtónleikar á Hilton Reykjavík Nordica í dymbilviku, á þriðjudags- miðvikudags- og fimmtudagskvöld:

    Blúsmiðinn 
    Blúsmiðinn veitir aðgang að öllum þremur stórtónleikunum á Hilton Reykjavík Nordica. Takmarkað magn í boði, fyrstir kaupa fyrstir fá.

    Stórtónleikar þriðjudaginn 27. mars kl. 20.00.
    Laura Chavez og Ina Forsman – Beggi Smári og Nick Jameson – Blúsaðasta band Músíktilrauna

    Blúshátíð í Reykjavík hefst með látum enda er engin logmolla í kringum Lauru Chavez og Inu Forsman, þvert á móti. Ina Forsman kom eins og hressandi hvirfilbylur inn í blúsheiminn og hefur frá fyrsta degi vakið eftirtekt og aðdáun fyrir túlkun, kraft og rödd sem þykir bæði vera undur mjúk og ansi hrjúf. Laura Chavez er frábær gítarleikari, sögð vera einn besti blúsgítarleikari samtímans og stendur fyllilega undir því, kraftmikil og ljóðræn í senn. Áhorfendur um allan heim hafa kolfallið fyrir spilagleði og líflegri sviðsframkomu þeirra.

    Fyrir hlé ráða Beggi Smári og Nick Jameson ríkjum á stóra sviðinu ásamt Friðriki Júlíussyni á trommur Pétri Sigurðssyni á bassa. Á matseðlinum er kraftmikill blús, fjör og vænn skammtur af bráðsmitandi stemningu. Allra fyrst á sviðið verður blúsaðasta band Músíktilrauna 2018. Þetta er spennandi!

    Stórtónleikar miðvikudaginn 28. mars kl. 20.00.
    Larry McCray og The Blue Ice band – Langi Seli og Skuggarnir – Lúðrasveitin Svanur

    Gítarleikarinn, söngvarinn og lagahöfundurinn Larry McCray hefur verið leiðandi í bandarískum blús síðustu 25 árin. Larry hefur verðskuldað verið valinn besti blúsleikari Bandaríkjanna og það verður sannkölluð upplifun að sjá hann á Blúshátíð. Strákarnir í The Blue Ice Band iða í skinninu eftir því að fá spila með  þessum snillingi.

    Langi Seli og töffararnir í Skuggunum trylla gesti hátíðarinnar með nýju efni og eldi smellum fyrir hlé en fyrst mun brassið ráða ríkjum. Já, Lúðrasveitin Svanur hitar fólk upp með sannkölluðum New Orleans bræðingi. Þetta er uppskrift að fjöri!

    Stórtónleikar fimmtudaginn, 29. mars, kl. 20.00.
    Íslenskur blús í hæsta gæðaflokki

    Á skírdagskvöld verður boðið upp á íslenska blúsveislu sem getur ekki klikkað. Fyrir hlé leiðir Tryggvi Hübner hljómsveit þar sem Haraldur Þorsteinsson er á bassa, Ásgeir Óskarsson á trommum og Magnús Jóhann á hljómborð. Flestir þeirra voru í hljómsveitinn EIK og nokkur lög þessarar goðsagnakenndu hljómsveitar munu heyrast á hátíðinni.

    Eftir hlé bætast fleiri stjörnur í hópinn; Björgvin Gíslason, Sigurður Sigurðsson, Davíð Þór Jónsson, Guðmundur Pétursson, Óskar Logi, Stefanía Svavarsdóttir, Halldór Bragason, Róbert Þórhallsson og fleiri og fleiri. Á sviðinu verður rjóminn af íslenskum blústónlistarmönnum sem bjóða upp á blús af bestu sort. Þetta verður ekki betra!

    Klúbbur Blúshátíðar verður opinn á Hilton Reykjavík Nordica eftir alla tónleikana og þar gerast undur og stórmerki. Reynsluboltar, ungliðar og frægir leynigestir hræra saman   þjóðlegum íslenskum blús, Mississippi blús, rokki og öðrum skemmtilegheitum fyrir lífsglaða nátthrafna.

    Blúshátíð í Reykjavík hefst laugardaginn 24. mars með Blúsdegi í miðborginni þar sem  Blúshátíðin leggur Skólavörðustíginn undir sig. Við setningu hátíðarinnar verður tilkynnt um val á heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur 2018. Boðið verður upp á lifandi blús víða á Skólavörðustígnum frá klukkan 14.00 til 16.00. Kveikt verður upp í grillunum og boðið upp á kjúklingavængi og fleira.

    Tónleikar á Borgarbókasafni kl. 16.00.
    Facebook https://www.facebook.com/www.blues.is

    Eins og undanfarin ár aðeins er tekin frá sæti fyrir matargesti VOX. Veitingahúsið VOX á Hilton Reykjavík Nordica ætlar að bjóða uppá sérstakan matseðil í tilefni Blúshátiðar. Matargestir VOX fá frátekin sæti á tónleikunum kl 20 um kvöldið. VOX restaurant / bistro – Hilton Reykjavik Nordica – Suðurlandsbraut 2 Sími: 444 5050 – vox@vox.is http://www.vox.is/

    Hátíðin er styrkt af Reykjavíkurborg.

    logosupa

  • Sjálfboðaliðar Blúshátíðar 2015. Það vantar alltaf fleiri blúshendur. Við gerum heiminn betri með blús.

    Blushatid_2015_poster_web

    Sjálfboðaliðar Blúshátíðar. Það vantar alltaf fleiri blúshendur við gerum heiminn betri með blús. Vertu með í liðinu á Blúshátíð í Reykjavík 2015 ..

    Hér tökum við á móti skráningum frá þeim sem vilja leggja sitt af mörkum til hátíðarinnar með því að gerast sjálfboðaliðar.

    Sjálfboðaliðar Blúshátíðar eru margir og sinna alls konar afar skemmtilegum störfum.

    Öllum sem lagt hafa okkur lið eru færðar hjartans þakkir fyrir óeigingjarnt framlag og fórnfúst starf á undanförnum árum.

    Það vantar alltaf fleiri blúshendur! Jákvæðni ,bjartsýni, gaman er fyrir vini eða vinkonur að koma saman í þetta.

    Sendið okkur línu á blues@blues.is og við verðum í bandi

    Nafn:

    Aldur:

    Netfang:

    Sími:

    Um mig:

    Hér er lag með Bob Stroger sem kemur og spilar fyrir okkur

     

    davidogblossi

  • Blúsmenn Andreu á Blúskvöldi Blúsfélags Reykjavíkur mánudaginn 2. mars kl 21 á Rosenberg.

    Blúsmenn Andreu á Blúskvöldi Blúsfélags Reykjavíkur þann 2. mars kl 21 á Rosenberg.
    Mætum öll á blúskvöldin okkar og tökum einhvern með sem hefur ekki komi áður.
    Reykjavik Blues Society monthly blues evening with local blues . The best in town

    7045598605_b179fe8001_z

    https://www.facebook.com/events/887770734577387/

  • Plakat Blúshátíðar 2015 eftir Jón Ingiberg Jónsteinsson

    Plakat Blúshátíðar 2015 eftir Jón Ingiberg Jónsteinsson

    Plakat Blúshátíðar 2015 að venju eftir snillinginn Jón Ingiberg Jónsteinsson fleiri verk hans eru að finna á www.joningiberg.com . Hægt er að hlaða niður og prenta út og hengja upp sem víðast í vinnunni, kaffistofum, blússkýlum,Bátaskýlum, bílskúrnum, þvottahúsinu og þar sem ykkur dettur í huga að hjálpa til . Við gerum heiminn betri með blús.

    Blushatid_2015_poster_web

    Miðasala hér er á midi.is 

     

  • Heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur 2015 sendið tilnefningar á netfangið blues@blues merkt heiðursfélagi

    Það stendur til að heiðra blúsmann/konu og gera að heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur fyrir framlag sitt til blústónlistar. Tilkynnt verður um valið við setningu Blúshátíðar í Reykjavík 2015 þann 28. mars næstkomandi.

    Sendið tilnefningar á netfangið blues@blues.is merkt heiðursfélagi 2015.

    Magnús Eiríksson var heiðraður 2004 , Björgvin Gíslason 2005 , Andrea Gylfadóttir 2006. Krístján Kristjánsson 2007, Ásgeir Óskarsson 2008, Pinetop Perkins 2009, Deitra Farr 2010, Guðmundur Pétursson 2011 og Pétur Tyrfingsson 2012. Halldór Bragason 2013. Jón Ólafsson 2014.

    Jonolafs

    Jón Ólafsson var valinn heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavikur 2014