Author: bbking

  • Blúshátíð í Reykjavík 1-2. apríl 2026

    Hátíðin verður á sínum stað í dymbilvikunni á Hilton Reykjavík Nordica.

    Framundan er árleg blúsveisla þar sem bæði innlendar og erlendar blússtjörnur stíga á stokk.

    Að lokinni formlegri dagskrá opnar Klúbbur Blúshátíðar þar sem tónleikagestir geta notið lifandi tónlistar í afslöppuðu og skemmtilegu umhverfi.


    🍽️ Matur & tónleikaupplifun

    Gerðu kvöldið algjörlega ógleymanlegt! Gestir geta bókað sig í hátíðarkvöldverð á VOX Restaurant fyrir tónleikana.


    🎵 Dagskrá tónleika

    Miðvikudagur 1. apríl – Hilton Reykjavík Nordica

    • BlúskompaníiðÞakkargjörð til Magnúsar Eiríkssonar (Pálmi Gunnarsson, Stefán Már Magnússon, Magnús Magnússon, Davíð Þór Jónsson, Ellen Kristjánssdóttir og gestir)

    • Lay Low

    • Þorleifur Gaukur, Davíð Þór & Gummi Pé

    • Hinir ástsælu Spaðar

    • Klúbbur Blúshátíðar

    Fimmtudagur 2. apríl – Hilton Reykjavík Nordica

    • Sheryl Youngblood Band

    • Kvartett Sigurðar Flosasonar & Andrea Gylfa (Andrea Gylfa, Sigurður Flosason, Þórir Baldursson, Andrés Þór Gunnlaugsson og Einar Scheving)

    • Krummi Björgvinsson

    • Klúbbur Blúshátíðar


    • 🕖 Dyr opna: Kl. 19:00

    • 🕗 Hátíðin hefst: Kl. 20:00

    • 👨‍👩‍👧‍👦 Aldurstakmark: Ekkert – allir velkomnir!


    SMELLTU HÉR TIL AÐ KAUPA MIÐA

  • 🎸 Blúsdagurinn 2026. Króm, gítarar og geggjuð stemmning!

    Ertu tilbúinn í blúsinn? Við spörkum Blúshátíð í Reykjavík í gang með stæl, laugardaginn 28. mars. Við mætum þangað sem krafturinn og tónlistin mætast, í höfuðstöðvum Krúserklúbbsins að Höfðabakka 9.

    Hlakkaðu til að sjá glæsilega fornbíla, finna lyktina af frelsinu og heyra alvöru blús óma um salinn.

    Allir eru velkomnir! Þú þarft ekki að vera meðlimur í Krúser til að mæta – bara mæta með gott skap. Aðgangur er algjörlega ókeypis.


    🕒 Dagskrá dagsins:

    • 13:00Blúshátíð í Reykjavík 2026 sett formlega.

    • 13:10 – 16:00Lifandi tónlist í hæsta gæðaflokki:

      • Mõhalla Music Company (MMC)

      • Blússveitin Barlómur

      • E Major

      • Trenton Page Band


    Hvar og hvenær?

    • 📍 Staður: Krúserklúbburinn, Höfðabakki 9

    • 📅 Dagsetning: Laugardagurinn 28. mars

    • Tími: Kl. 13:00 – 16:00

    Við hlökkum til að sjá ykkur … í KRÚSER! 🤘🚗💨