|
Klúbbur Blúshátíðar
Café Rosenberg Klapparstíg 25 101 Reykjavík
Sími: 551 2442
Eldhús Rósenberg opið frá kl. 17:00 - 21:30
Blústilboð á matseðli

Blúshátíð í Reykjavík 2010 Klúbbur Blúshátíðar
Allt getur gerst á Klúbbi Blúshátíðar
Dagskrá
Laugardaginn 27.mars
Devils Train , Davíð Þór Jónsson og fl.
Rattlesnake‘s Daddies frá Noregi
Blúsdjamm fram á nótt undir stjórn Gauksins
Sunnudagur 28.mars
Café Rósenberg frá kl 21 – 00, Klúbbur Blúshátíðar í samvinnu við ljóðaklúbbinn „Mitt í auðninni“
Ljóðskáld: Bergþóra Jónsdóttir, Haukur Ingvarsson, Pjetur Hafstein Lárusson og Vilborg Dagbjartsdóttir, (Vilborg les upp úr væntanlegri bók, sem kemur út í tilefni 80 ára afmælis hennar).
Hljómsveitir: Stone Stones , Bee Bee and the Bluebirds , Klassart
Mánudagur 29.mars
Café Rósenberg Klúbbur Blúshátíðar
ASA tríó
Óli Stolz & co
Blúsfönksveinar Hannesar
Blue Monday
Þriðjudagur 30.mars
Café Rósenberg Klúbbur Blúshátíðar
Móberg
Lily & the Blue boys
Rósa og Strákarnir hans Sævars
Benjamín Náttmörður Árnason
Miðvikudagur 31.mars
Café Rósenberg frá kl 20 – 01, Klúbbur Blúshátíðar
Síðasti sjens
R. B. Bluesband
Lame Dudes
Solla Soulful
Fimmtudagur 1. apríl
Café Rósenberg frá kl 20 - 00, Klúbbur Blúshátíðar Blúshornið
Blús Víkingarnir
The Vintage
Hulda Rós og Rökkurbandið
Vax
Blúsdjamm Blúshátíðarslit
Miðasala á Cafe Rosenberg eingöngu við innganginn 1500 kr
Miðasala á stórtónleikana er á www.midi.is
Devil´s train
Útúrfunkuð blússtemming með kitlandi gítarleik og seiðandi munhörputónum ásamt drungalegum áslætti hihats, tambúrínu og Maracas. Það er tónlistin sem Devil's Train spilar. Dúóið Tómas Ævar Ólafsson gítarleikari og söngvari og Þorleifur Gaukur Davíðsson munnhörpuleikari, söngvari og slagverksleikari, var stofnað í byrjun árs 2008 þegar Tómas Ævar og Þorleifur Gaukur komu saman í fyrsta skipti. Annar hélt að þetta ætti að vera funkband en hinn var nokkuð viss um að Devils Train væri Blúshljómsveit. Allavega fundu þeir millileið og spiluðu á víð og dreif um landsbyggðina, þar ber helst að nefna á Blúshátíð í Reykjav 2008 og 09, Köntrýfest á Skagaströnd með KK og Leo Gillespie og svo að sjálfsögðu á nýstofnaðri Blúshátíð Akraneskaupstaðar.

Solla Soulful
Solla syngur frumsamin lög og einnig vel valin blúslög eftir eldri meistara.
Sólveig Þórðardóttir - söngur Kjartan Valdemarsson - Hammond/píanó Egill Örn Rafnsson - trommur Ingi Björn Ingason - rafbassi Ragnar Emilsson - rafgítar

Stone stonesStofnuð 2009 fyrir The Nordic Blues Festival, og hafa spilað saman síðan, þ.e. í tæpt ár. Spila mest megnis tökulög frá tónlistarmönnum eins og Stevie Ray Vaughan, Robert Johnson, Albert King og Seasick Steve. Hróðmar Sigurðsson – gítar/söngur Hörður Már Bjarnason – hljómborð/bassi/söngurSteinn Daði Gíslason – trommur
Bee Bee and the bluebirds
Hljómsveitin er glæný af nálinni og spilar skemmtilegar blúsábreiður og frumsamið efni.
Brynhildur Oddsdóttir – söngur/gítar
Birkir Brynjarsson – gítar
Eva Rut Hjaltadóttir – bassi
Bjarni Biering Margeirsson – hljómborð
Sigurður Stein Henriksen – trommur
Blue Monday
Stofnuð 2009 til að svala spilaþorsta meðlima á ýmiskonar blústónlist, allt frá Snooks Eaglin og Leadbelly til yngri spámanna, allt til dagsins í dag.
Hjörtur Steinarsson – gítar
Höskuldur Lárusson – söngur
Friðrik Júlíusson – trommur
Ingi Skúlason – bassi
_______

Jazzblúsband Óla Stolz & co
Flytja tónlist eftir gítarleikarann Kenny Burrell. Hann spilaði mikið í böndum orgelleikarans Jimmy Smith og var með hljómsveitir í eigin nafni. Músík hans er jazzblúsinn eins og hann gerist bestur.
Ólafur Stolzenwald – kontrabassi
Ásgeir Ásgeirsson – gítar
Ómar Guðjónsson – gítar
Scott McLemore - trommur
Blúsfönksveinar Hannesar
Blúsfönksveinar Hannesar leika blúsfönk frá 6. áratug síðustu aldar, tónlist eftir m.a. Cannonball Adderley og Lou Donaldson.
Hannes Friðbjarnarson – trommur/söngur
Ásgeir Ásgeirsson – gítar
Haukur Gröndal – saxófónn
Agnar Már Magnússon – orgel
ASA tríó
Orgel trío sem nýtur þess einfaldlega að spila hvaða tónlist sem er á hvaða stundu sem er. Á tónleikum með ASA tríóinu geturðu átt von á að heyra tónlist eftir höfunda á borð við Thelonious Monk, Jimi Hendrix, Wayne Shorter, Red Hot Chili Peppers, eða frumsamin lög hljómsveitarmeðlima.
Hafa vakið athygli fyrir kraftmikla og líflega spilamennsku.
Á Blúshátíð 2010 mun ASA tríó leika útsetningar sínar á tónlist gítargoðsagnarinnar Jimi Hendrix.
Agnar Már Magnússon – Hammond orgel
Andrés Þór Gunnlaugsson – gítar
Scott McLemore – trommur
Móberg
Hafa spilað saman síðan haustið 2009. Blús-/rokkband með frumsamið efni. Eru í áttina að hljómsveitum eins og Bad Company, Led Zeppelin og Lenny Kravitz. 60´s tónlist.Sigursveinn Þór Árnason - söngur gítar Rúnar - gítar Jón Kristmann Þorsteinsson - bassi Hreiðar Júlíusson - trommur
Lily & The Blue boys
6 nemendur við Tónlistarskóla FÍH, sem koma með bræðing. Hafa spilað mikið saman í hinum ýmsu verkefnum, og hafa spilað þó nokkra tónleika á Rósenberg við mjög góðar undirtektir.
Lilja Björk Runólfsdóttir - söngur
Daníel Geir Sigurðsson - trompet
Baldur Tryggvason - gítar
Ingi Bjarni Skúlason - píanó/hljómborð
Sigmar Þór Matthíasson - bassi
Jón Óskar Jónsson - trommur
Rósa og strákarnir hans Sævars
Rósa - söngur
Sævar Árnason - gítar
Gunnar Örn Sigurðsson - gítar
Ástþór Hlöðversson - bassi/söngur
Steinar Helgason - trommur
Benjamín Náttmarðar tríó
Spila frumsamda tónlist eftir Benjamín Náttmörð af óútgefinni sóló plötu hans „Fall“, og verða þessir tónleikar heimsfrumflutningur hennar, svo engin veit við hverju má búast.... en að sjálfsögðu verður þetta frábært.
Magnús Tryggvason Eliasen – trommur
Leifur Gunnarsson – kontrabassi
Benjamín Náttmörður Árnason – gítar/söngur
Síðasti sjens
Blúsinn er akkeri hljómsveitarinnar og drifkraftur
Jens Einarsson – söngur/gítar/slide gítar
Þórir Ólafsson – bassi/raddir
Oddur Ólafsson – trommur
Gunnar Örn Sigurðsson – gítar
The Vintage
Classic Rock og Blues hljómsveit, sem er búin að vera á fullu síðan 2006, og eru núna að vinna í sinni fyrstu plötu.
Óskar Logi Ágústsson - gítar/söngur
Halldór Gunnar Pálsson - bassi/söngur
Guðjón Reynisson - trommur

R.B. Bluesband
Stofnað til að kynna og spila á Norden Bluesfest í Rangárþingi, 2009.
Síðan um áramót hefur bandið verið að vinna í plötu og mun frumflytja efni af þeirri plötu á Rósenberg.
Ómar Diðriksson – söngur/kassagítar
Guðmundur Eiríksson – píanó/orgel/bakraddir
Tryggvi Sveinbjörnsson – rafgítar/bakraddir
Benedikt Valberg Helgason – rafgítar
Halldór Halldórsson – bassi
Ragnar Sigurjónsson – trommur
Lame Dudes
Lame Dudes spilar blús og blúskennda tónlist, m.a. lög af albúminu "Hversdagsbláminn" sem er fæst til niðurhals á gogoyoko.com , Amazon.com og í iTunes. "Hversdagsbláminn" er með blústónlist með íslenskum textum eftir Hannes Birgi Hjálmarsson. Auk þess spilar hljómsveitin þekkta blússtandarda eftir meistara blústónlistarinnar. Lame Dudes tók þátt í Blúshátíð 2009 og á Blúshátíð Rangárþings auk þátttöku á Blúskvöldum Blúsfélags Reykjavíkur sl. ár. Hljómsveitin hefur einnig haldið fjölda tónleika á höfðuborgarsvæðinu og hefur staðið fyrir "Juke Joint Festival" árlega frá 2007.
Hannes Birgir Hjálmarsson – söngur/gítar
Snorri Björn Arnarsson – gítar/bakraddir
Arnviður Snorrason – trommur
Jakob Viðar Guðmundsson – bassi
Blús Víkingarnir
Koma frá Höfn,Hornafirði, og voru þeir fyrstu á Höfn, til að spila blús sem hluta af efnisskránni, upp úr 1970.
Sæmundur Harðarson – gítar/söngur
Óskar Guðnason – gítar/söngur/munnharpa
Ragnar Eymundsson – trommur/munnharpa
Jón Bjarni Jónsson – bassi

Hulda Rós og Rökkurbandið
Hljómsveitin Hulda Rós og Rökkurbandið var formlega stofnuð í byrjun árs 2007 og þrátt fyrir ungan aldur söngkonunnar var alltaf áhugi hennar að syngja blús og markmið bandsins að vera undir áhrifum djass og blústónlistar. Fyrstu tónleikarnir voru á Norðurljósablús á Höfn í Hornafirði árið 2008 og í kjölfarið fylgdu tónleikar á Hammondhátíð á Djúpavogi og Bræðsluhátíðinni á Borgarfirði Eystri við góðar undirtektir. Hljómsveitarmeðlimir eru allir Hornfirðingar og jafnvel þótt söngkonan Hulda Rós sé búin að vera búsett í Reykjavík í háskólanámi síðustu 5 árin, þá hefur hljómsveitin vaxið. Til gamans má geta að gítarleikarinn, Sigurður Guðnason, er faðir Huldu Rósar en aðrir meðlimir eru allt rótgrónir tónlistarmenn frá Höfn.
Dagskráin inniheldur lög úr ýmsum áttum. Bæði “hefðbundinn” angurvær kvennablús, djass standardar og önnur þekkt og óþekkt lög, flest með nýjum útsetningum löguð eftir tilfinningu hljómsveitarinnar.
Hulda Rós Sigurðardóttir – söngur
Heiðar Sigurðsson – Hammond orgel
Sigurður Guðnason – gítar
Bjartmar Ágústsson – kontrabassi/bassi
Eymundur Ragnarsson – trommur
Vax
Stofnuð 1999. Spiluðu fyrst mest breskt rythm og blúsrokk frá 6. og 7. áratugnum undir sterkum áhrifum frá hljóm Farfisa orgelsins. Hafa spilað á nokkrum tónlistarhátíðum bæði hérlendis og erlendis, og gefið út plötur.
Halldór Warén – orgel/bassi
Vilhjálmur Warén – gítar/söngur
Baldvin Ab Aalen – trommur
|