Fréttir
 Tenglar
 Póstlisti
 Saga blúsins
 Blúsplötur
 Um félagið
 English
 

 

 
 

Um félagið

Blúsfélag Reykjavíkur var stofnað þann 6 nóvember 2003 á Kaffi Reykjavík. Þar komu saman helstu merkisberar blústónlistar á Íslandi og spiluðu saman fyrir fullu húsi af áhugafólki um blús. Tilgangur félagsins er að auka hróður blússins á Íslandi.

Með stofnun Blúsfélags Reykjavíkur er
markmiðið að greiða fyrir framgangi blústónlistar á Íslandi og sameina blúsáhugafólk í eitt félag sem ætti að auðvelda
framgang tónlistarinnar.

 

Stofnskrá Blúsfélags Reykjavíkur

1. gr.

Heiti félagsins er Blúsfélag Reykjavíkur. Heimilisfang félagsins er að XXXXXX Reykjavík

2. gr.

Tilgangur félagsins er að efla blústónlist á Íslandi og auka hróður blústónlistar á Íslandi ,greiða fyrir framgangi blústónlistar á Íslandi og sameina blúsáhugafólk .Reka vefsetur www.blues.is og sjá um póstlista félagssins og senda út fréttabréf .Heiðra menn sem unnið hafa að framgangi blústónlistar. Samskipti við önnur blúsfélög og samvinna um blúshátíðir.

Tekjur eru frjáls framlög frá ríki og sveitarfélögum, auk frjálsra framlaga frá einstaklingum, fyrirtækjum og samtökum og annars aflafjár.

3. grein

Tekjum og eignum Blúsfélags Reykjavíkur má einvörðungu verja í samræmi við markmið félagsins.

4. gr.

Réttindi og skyldur:

Allir geta orðið félagar: einstaklingar, félög, fyrirtæki og stofnanir. Félagar hafa málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum svo og kjörgengi.

Öllum áhugamönnum um blústónlist er frjálst að sækja um aðild. Stjórn hefur umsjón með inntöku nýrra félaga. Stjórn er heimilt að synja um aðild og reka menn úr félaginu .

Stofnendur eru sem hér segir:

SIGN

SIGN

SIGN

SIGN

SIGN

5. gr.

Stjórn Blúsfélags Reykjavíkur skipa fimm menn, sem kosnir eru af félögum til tveggja ára .ennfremur skal kjósa tvo varamenn. Kosning skal fara fram á aðalfundi. Stjórnin skiptir með sér verkum. Hlutverk stjórnarinnar er að stjórna fjárreiðum og taka ákvarðanir er snerta rekstur félagsins og eflingu. Skal stjórnin í lok hvers starfsárs gera grein fyrir starfsemi félagsins og viðgangi þess 

Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum og kýs úr sínum hópi formann, ritara, gjaldkera og meðstjórnendur. Þrír stjórnarmenn sameiginlega hafa umboð til að skuldbinda félagið. Daglega umsjón félagsins annast formaður stjórnar. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir.Stjórnin getur falið mönnum verk.

6. grein

Aðalfund skal halda eigi síðar en 6.. nóvember ár hvert. Aðalfund skal boða með 14 daga fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Á aðalfundi skal stjórnin gera grein fyrir starfsemi félagsins og leggja fram endurskoðaða ársreikninga.

7.grein

Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.

Dagskrá aðalfundar skal vera þannig:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Afgreiðsla reikninga.
3. Starfsáætlun næsta árs.
4. Kosning stjórnar og endurskoðenda.
5.Önnur mál

6. Blúsdjamm

8. gr.

Ákvörðun um slit félags verður tekin á aðalfundi með auknum meirihluta 2/3 og renna eignir þess þá til góðgerðarmála fyrir unga tónlistarmenn.

Reykjavík, 20.maí 2004.

 

Ef þú vilt koma fréttum á framfæri, eða einhverju öðru sem gæti verið áhugavert fyrir aðra blúsunnendur, endilega hafðu samband við okkur hér.

 

________________________________________________

Eitt og annað úr sögu félagsins.

Blúshátíð í Reykjavík er lokið.

Þökkum innilega fyrir komuna.

Þökkum öllum sem lagt hafa okkur lið frá upphafi.

 

Blús í miðbænum Laugardaginn 27. mars Blúsgjörningur á Lækjartorgi kl 13:00 The Flying white Cadillac over the House of BluesAkstur Blúsvagna Krúserklúbbs Reykjavíkur kl 13:15 bílasýning í Bílakjallara Ráðhússins frá kl 14 www.kruser.is

Setning Ráðhúsið kl 14:00 Setning Ráðhúsið í Reykjavík kl 14:00 tilkynnt um heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur. Magnús Eiríksson var heiðraður 2004 , Björgvin Gíslason 2005 , Andrea Gylfadóttir 2006, Krístján Kristjánsson 2007 , Ásgeir Óskarsson 2008 og Pinetop Perkins 2009.

Allsherjar gleði og hátíðadjamm fram eftir degi. Hér getur allt gerst.

Sunnudag 28. mars kl. 20 – Fríkirkjan í Reykjavík
Fjórar dívur: Deitra Farr, Kristjana Stefáns, Ragnheiður Gröndal og Brynhildur Björnsdóttir. Davíð Þór Jónsson leikur á flygil.

Þrennir stórtónleikar á Hilton Reykjavík Nordica 30.mars - 1. apríl.

Klúbbur Blúshátíðar á Café Rósenberg 27.3 – 1. apríl Dagskrá á Rósenberg nánar

Blúshátíð í Reykjavík 2010 verður haldin 27. mars – 1. apríl. Aðalgestir hátíðarinnar í ár verða Super Chikan and the Fighting Cocks, sem koma sjóðheit frá Mississippi; stórstjarnan og munnhörpuleikarinn Billy Branch sem kemur frá Chicago og blúsdívan Deitra Farr. Þrennir stórtónleikar verða á Hilton Reykjavík Nordica, þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld, og fjórar dívur syngja á tónleikum í Fríkirkjunni á pálmasunnudag, 28. mars.

Ýtarleg dagskrá Café Rosenberg hér

Sunnudag 28. mars kl. 20 – Fríkirkjan í Reykjavík
Fjórar dívur: Deitra Farr, Kristjana Stefáns, Ragnheiður Gröndal og Brynhildur Björnsdóttir Davíð Þór Jónsson leikur á flygil..

Þriðjudag 30. ars kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
Deitra Farr , þessi stórkostlega blússöngkona frá Chicago tryllir gesti Blúshátíðar í Reykjavík í ár. Deitra er ekta blússöngkona og syngur blús eins og hann gerist bestur. Hún hefur blúsinn í blóðinu og sönginn í hjartanu.

Á tónleikunum kemur einnig fram Nordic All Stars Blues Band með nýrri áhöfn skipaðri úrvali blúsmanna frá Íslandi, Noregi og Svíþjóð.

Svein Ole Fjelde Vocal
Oddvar Solheim Guitar
Arnt Ove Kvernenes Harmonica
Gummi Petursson Guitar/Vocal
Thorleifur Davidsson Harmonica,/Vocal
Birgir Baldursson Drums
Kris Palais Bass

Miðvikudag 31. mars kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
Billy Branch and the Blue Ice band, goðsögn úr Chicago blúsnum; fyrrum munnhörpuleikari Willie Dixon og Chicago Blues All Stars kemur í fyrsta skipti fram á Blúshátíð í Reykjavík. Billy Branch er einn af virtustu og vinsælustu blúsmönnum heims í dag, margverðlaunaður og hefur spilað með flestum stórstjörnum blústónlistarinnar frá upphafi, þ.á.m. Muddy Waters, Koko Taylor, Johnny Winter, Albert King, Junior Wells og James Cotton. Okkar ástsæla Blue Ice Band leikur undir hjá Billy Gummi P, Dóri B, Biggi B, dr Robert og Davíð Þór á hammond

Á tónleikunum kemur einnig fram íslenska stórsöngkonan Ragnheiður Gröndal og syngur blús með hljómsveit sinni.

Fimmtudag 1. apríl, skírdag kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
Super Chikan and the Fighting Cocks , koma beina leið frá Mississippi og eru líkleg til að gera allt vitlaust. Þeir sem hafa upplifað tónleika þeirra eiga ekki orð af hrifningu. Super Chikan, er tilnefndur til fernra blúsverðlauna í ár, meðal annars sem BB King Performer of the Year. Hann er einstakur og litríkur tónlistarmaður sem smíðar sína eigin óvenjulegu gítara og tónleikar hans eru hreinasta upplifun. Hljómsveitina The Fighting Cocks skipa LaLa Craigdelong hljómborðsleikari, Heather Tackett bassaleikari og Jamiesa Turner trommuleikari; jú, allt konur.

Hljóð Jón Skuggi

 

Pinetop Perkins er heiðurfélagi Blúsfélags Reykjavíkur 2009

 

Blús- og djassfélag Akraness stendur nú fyrir sinni annari hátíð daganna 6-8 Nóvember

Um er að ræða þriggja daga tónlistarveislu sem fer fram í Gamla Kaupfélaginu á Akranesi og á Skrúðgarðinum Kaffihús.Það verður mikil og fjölbreytt dagskrá í boði yfir helgina, landslið tónlistarmanna munu koma fram, meðal annars ; Andrea Gylfadóttir, Þorsteinn Magnússon, Björgvin Gíslason, Sigríður Thorlacius,Halldór Bragason, Kristjana Stefnánsdóttir, Pálmi Gunnarsson, Eðvarð Lárusson, Sigurður Sigurðsson, o.m.fl.Blús- og djassfélag Akraness var stofnað haustið 2008, og hefur verið starfrækt í heilt ár núna. Megin markmið félagsins er að efla tónlistarlíf á Akranesi og víðar.

Mikið af listarmönnum sem koma fram á hátíðinni koma frá Akranesi , svo að heimamenn munu setja mikinn svip á hátíðinna.

Tónleikar hefjast Kl. 21:00 öll kvöldin og kostar 2.000 kr inn.

Miðasala hefst Kl. 18:00 alla dagana.

Það verða í boði helgarpassar fyrir alla hátíðina og munu þeir kosta 4.000 kr.


Dagskrá

Föstudagur 6. Nóvember
Kirkjubraut 11
Kl. 21:00

Devil‘s Train
Park Project
Ferlegheit
Kristjana Stefánsdóttir  

Laugardagur 7. Nóvember

Skrúðgarðurinn Kaffihús
Kl. 17-19
Frítt inn

Héðinn
Devil's Train
Ferlegheit
Lame dudes

Kirkjubraut 11
Kl. 21:00

Dóri Braga & Gaukur
Steini Magg og band
Skaf
Vinir Dóra

Sunnudagur 8. Nóvember
Kirkjubraut 11
Kl. 21:00

Blús- og djassband TOSKA
Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltarnir
Blúsmenn Andreu

Miðaverð á kvöld : 2000kr
Helgar passi : 4000kr
Miðasala opnar kl. 18:00

 

 

Föstudagurinn 26. júní

Tónleikar í Tjarnarborg kl. 21:00:

Hljómsveitin Roðlaust og beinlaust
Með Björn Val Gíslason í fararbroddi

Manhattan
Rúnar eff
Hallgrímur Yngvason
Stefán Gunnarsson
Valgarður Óli Ómarsson
Ragnar Jón Ragnarsson

Guito Thomas and band
Guioto Thomas
Thiago Trinsi
Halli Gulli
Stefán Gunnarsson

Tregasveitin
Sigurður Sigurðsson
Guðmundur Pétursson
Pétur Tyrfings
Stefán Ingólfsson
Jón Borgar Loftsson


Laugardagurinn 27. júní

Útimarkaður við Tjarnarborg kl. 14:00
Lifandi tónlist

Tónleikar í Ólafsfjarðarkirkju kl. 17:00
Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson

 

Tónleikar í Tjarnarborg kl. 21:00

JJ-Soulband

JJ-Soul
Steingrímur Óli
Stefán Ingólfsson
Eðvarð Lárusson
Kjartan Valdemarsson

Johnny and the rest
Atli Snær Keransson
Bragi Eiríkur Jóhannsson
Guðmundur Þór Gunnarsson
Hrafnkell Már Einarsson

Jóhann Jónsson

Landsliðið:
Halldór Bragason
Ragnheiður Gröndal
Guðmundur Pétursson
Jón Ólafsson
Birgir Baldursson

 

Jazz- og Blúshátíð Kópavogs 2009

Jazztónleikar í Salnum , 6. júní 2009 KL. 21:00, Verð: 2.500 kr.

Menningarlífið í Kópavogsbæ hefur löngum verið blómlegt og nú verður árleg Jazz og Blúshátíð Kópavogs haldin í annað sinn dagana 4. – 6. júní næstkomandi.

Fimmtudaginn 4. júní kl. 20:00. Hátíðin sett í Molanum.
Þar koma fram ungir Kópavogs-blúsarar ásamt nokkrum reyndari tónlistarmönnum, allir velkomnir.

Föstudaginn 5. júní kl. 14:00. Jazz og dægurlög í Gullsmára.
Tónleikar fyrir heldri borgara í þjónustumiðstöðinni Gullsmára þar sem fram koma Egill Ólafsson, Andrea Gylfadóttir og hljómsveit.

Föstudagskvöldið 5. júní kl. 21:00. Blústónleikar í Salnum.
Fram koma Egill Ólafsson, Páll Rosenkranz, Bogmil Font og Andrea Gylfadóttir ásamt Blúshljómsveit Kópavogs. Hver stórsöngvarinn á fætur öðrum stígur á stokk og þenur sín raddbönd við undirleik Blúshljómsveitar Kópavogs en hana skipa þeir Jóhann Óskar Hjörleifsson úr Salahverfinu, Björn Thoroddsen frá Sæbóli og Jón Rafnsson, utanbæjarmaður. Tekist verður á við þekkta blúshunda ásamt bláum dægurlögum sem sungið sig hafa inn í þjóðina gegnum árin.

Laugardagskvöldið 6. júní kl. 21:00. Jazztónleikar í Salnum.
Danski píanósnillingurinn Ole Kock Hansen, bassaleikarinn Mads Vinding ásamt Jóhanni Hjörleifssyni og Birni Thoroddsen galdra fram jazz á heimsmælikvarða. Ole Kock Hansen er einn frægasti jazzpianisti Dana í dag og hefur víða komið við meðal annars lék hann mikið með bassaleikaranum fræga Niels Henning ásamt því að stjórna Stórsveit danska ríkisútvarpsins. Ole er einnig þekktur fyrir útsetningar sínar á skandinavískum þjóðlögum en þær þykja með afbrigðum góðar. Við fáum að heyra nokkrar af perlunum hans á tónleikunum í Salnum.

DAGSKRÁ JAZZ OG BLÚSHÁTÍÐAR KÓPAVOGS 2009

FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ:
MOLINN kl. 20:00 SETNING HÁTÍÐAR: Gunnar I. Birgisson setur hátíðina.
Blús-tónleikar: Ungir blúsarar úr Kópavogi koma fram ásamt nokkrum reyndari.

FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ:
GULLSMÁRI KL 14:00
Jazz og dægurlög: Tónleikar fyrir eldri borgara í þjónustumiðstöðinni. Fram kom m.a. Egill Ólafsson og
Andrea Gylfadóttir. Frír aðgangur, allir velkomnir.

SALURINN kl 21: 00
Blús-tónleikar: Stórskotalið söngvara og hljóðfæraleikara tekst á við blúsinn. Fram koma meðal annarra Egill Ólafs, Bogomil Font, Páll Rósenkranz, Andrea Gylfa og Blúshljómsveit Kópavogs.

LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ:
SALURINN kl 21: 00
Jazz-tónleikar: Píanósnillingurinn Ole Kock Hansen og landi hans bassaleikarinn Mads Vinding leiða jazztónleikana að þessu sinni. Þeim til fulltingis verða Kópavogsbúarnir Björn Thoroddsen og Jóhann Hjörleifsson.

Miðasala á kvöldtónleika er í Salnum og á www.salurinn.is Miðaverð 2.500 kr.

____________

Chicagosprengjan Grana Louise kemur á

Blúshátíð í Rangárvallasýslu  “Norden Blues Festival“

Haldin verður Blúshátíð í Rangárvallasýslu um hvítasunnuhelgina undir nafninu  “Norden Blues Festival“.  Hátíðin stendur í þrjá daga þ.e. 29. 30. og 31. maí.  Það er Hekla Blúsfélag  sem stendur fyrir hátíðinni, en það félag var stofnað snemma á þessu ári. 

 Á tónlistarhátíðinni sem er mjög viðamikil koma fram margir þekktir listamenn svo sem blússprengjan Grana´ Louise frá Chicago ásamt Blue Ice Band  (Vinum Dóra).  Einnig munu íslensku Dívurnar Andrea Gylfadóttir, Kristjana Stefánsdóttir og Ragnheiður Gröndal  koma fram á hátíðinni ásamt frábærum tónlistarmönnum.   Eftirtaldar hljómsveitir eru einnig skráðar sem þátttakendur á hátíðinni:  Blúsmenn Andreu, Tregasveit Kristjönu, R.B. Blúsband, Mood, Chernobyl, Slow Train, South River Band, Blúsþrjótarnir, Óli Stolz & Co, The Dirty Deal, Spottarnir, Ferlegheit, Hot Babes & The Hottest, Munaðarleysingjarnir, Síðasti Séns o.fl. o.fl. 

Tónlistarhátíðin mun dreifast nokkuð um héraðið, en útgangspunktar hátíðarinnar verða byggðarkjarnarnir Hella og Hvolsvöllur ásamt ferðaþjónustuaðilum í Fljótshlíð.   Einnig verða  tónlistaruppákomur í Þykkvabæ og á Landvegamótum.   Þungamiðja kvöldtónleika verða stórtónleikar á Hvoli á Hvolsvelli.  Tónleikar verða haldnir á 11 stöðum  og eru skipulagðir tónleikar á hátíðinni  liðlega 40.  Gert er ráð fyrir að fólk nýti sér þá gistimöguleika sem til staðar eru í byggðarlaginu s.s. gistihús og tjaldsvæði.  Skipulagðar verða rútuferðir á milli tónleikastaða og helstu gististaða, meðan á hátíðinni stendur, þannig að allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi.  Ýtarleg dagskrá hátíðarinnar verður gefin út á næstu dögum.   Miðasala er á midi.is og við innganginn. Helstu samstarfsaðilar við Norden Blues Festival, eru sveitarfélögin í Rangárvallasýslu og Blúshátíð í Reykjavík.

Grana' Louise

Grana´ Louise er blúsinn holdgerður. Hún er einfaldlega ein frábærasta blússöngkona Chicago. Kraftmikil rödd hennar djúp og eilítið hrúf streymir beint frá hjartanu með ómengaðan hráan blús sem sendir hroll niður eftir hryggnum og fær líkama og hjarta til að blæða. Grana´ Louise er einstaklega skemmtilegur flytjandi og er framkoma hennar flestum ógleymanleg. Hún er þekkt um heim allan sem kraftmikil bluessöngkona en auk þess semur hún tónlist og er einnig tónlistarútgefandi. Einstæð og innblásin blústúlkun hennar dregur stöðugt að sér fleiri og fleiri einlæga elskendur blússins

Grana´ Louise heldur úti mjög góðri vefsíðu www.granalouise.com og hvet ég alla til að kíkja þar inn ef þeir vilja vita meira. Hún er með mörg járn í eldinum og virðist hafa óstöðvandi orku. Á heimasíðunni sést hverjum hún hefur spilað með og þá líka þau verðlaun sem hún hefur unnið til, útgefnar hljómplötur og uppkomandi tónleikar.

 

Blúshátíð í Reykjavík 4. - 9. apríl.er lokið

Þökkum öllum fyrir komuna

Pinetop Perkins var mjög glaður að hitta gamla vini og eignast nýja

Willie Smith

 

Deitra Farr

Hljóð: Jón Skuggi

Hljóðkerfi frá Hljodx & Hilton Reykjavík Nordica

Endurfundir

Blúshátíð í Reykjavík, 4. – 9. apríl 2009 

Pinetop Perkins og Vinir Dóra, Willie “Big Eyes” Smith , Deitra Farr , Nordic All Stars Blues Band , KK , Blúsmenn Andreu , Mugison , Finnskogen Blues Band , Devil's Train , Ragnheiður Gröndal

 

Blúsdagurinn – Blús í miðborginni Blúshátíð í Reykjavík sett laugardaginn 4. april, þegar miðborgin logar í blús. Meðal atriða þar: Setning kl 14 í samstarfi við Rás 2 • Blúslistamaður heiðraður. Akstur Blúsvagna Krúserklúbbs Reykjavíkur kl. 14 niður Skólavörðustíg og Bankastræti og rúntinn, og lýkur með bílasýningu á Lækjartorgi, www.kruser.is • Blúsáhaldagangan leggur af stað kl 14.15 frá Eggerti feldskera niður Skólavörðustíg og Bankastræti með lifandi blús á kaffihús og í verslanir • Gítarsýning verður opnuð í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti kl. 15 • Klúbbur Blúshátíðar opnaður á Café Rósenberg kl 17 • Blúsdjamm • Blús frameftir nóttu á Kaffi Rósenberg.

Þriðjudag 7. apríl kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
Pinetop Perkins
, lifandi goðsögn, og einn af síðustu blúsmönnum fyrstu kynslóðar blúsmanna sem enn lifa – og spilar, kemur fram með Vinum Dóra. Einnig: Nordic All Stars Blues Band, Deitra Farr, KK, og Devil's Train.

Miðvikudag 8. apríl kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
Willie “Big Eyes” Smith
and the Blue Ice Band , önnur lifandi goðsögn. Willie “Big Eyes” spilaði með Muddy Waters, eins og Pinetop, en hefur líka spilað með Buddy Guy, Junior Wells, Rolling Stones, Bob Dylan og Eric Clapton. Blúsmenn Andreu og Mugison koma einnig fram á tónleikunum .

Fimmtudag 8. apríl, skírdag kl. 20 –Hilton Reykjavík Nordica
Vinir Dóra ,
20 ára afmælisfagnaður. Með vinunum koma fram gamlir “Vinir” Deitra Farr, Ragnheiður Gröndal, Andrea Hjörtur Howser, Jens Hanson, Haraldur Þorsteinsson og fl. Á tónleikunum kemur einnig fram Finnskogen Blues Band frá Noregi.

Klúbbur Blúshátíðar á Café Rósenberg Klúbbur Blúshátíðar verður starfræktur frá laugardegi til loka hátíðarinnar 9. apríl. Þar verður leikinn blús af öllum gerðum, ungliðar og reynsluboltar mætast á sviðinu í fjölbreyttri dagskrá. Meðal viðburða í Klúbbi Blúshátíðar verður Þjóðlegi íslenski blúsinn, og Djassaður blús. Þess má auk þess vænta að leynigestir stígi á stokk. Meðal þeirra sem koma fram verða Park Project Pálma Gunnarssonar með söngkonunni Hrund Ósk Árnadóttur, Tómas R. Einarsson, Ólafur Stolzenwald, Kristjana Stefánsdóttir, Steindór Andersen, Hilmar Örn Hilmarsson, Ferlegheit, Devil's Train, Angela Basombrio, Arnar Guðmundsson, Þrjár raddir, The Lame Dudes, Birting og Finnskogen Blues Band. Klúbbur dagskrá www.blues.is/rosenberg.htm

 

Eins og undanfarin ár aðeins er tekin frá borð fyrir matargesti VOXVeitingahúsið VOX á Hilton Reykjavík Nordica ætlar að bjóða uppá sérstakan matseðil í tilefni Blúshátiðar.Matargestir VOX fá frátekin borð á tónleikunum kl 20 um kvöldið.



VOX restaurant / bistro - Hilton Reykjavik Nordica - Suðurlandsbraut 2
Sími: 444 5050 - vox@vox.is
http://www.reykjavik.nordica.hilton.com
http://www.vox.is

Pinetop Perkins , lifandi goðsögn, og einn af síðustu blúsmönnum fyrstu kynslóðar blúsmanna sem enn lifa – og spila, er gestur Blúshátíðar Reykjavíkur í ár. Pinetop er margviðurkenndur píanóleikari, og árið 2003 hafði hann hlotið Bandarísku blúsverðlaunin, sem nefnd eru Handy verðlaunin svo oft, að hann var útskrifaður þaðan með þeim óvenjulega heiðri að verðlaun fyrir besta píanóleik í þessari stærstu samkeppni blúsfólks, voru nefnd eftir honum og heita uppfrá því The Pinetop Perkins Piano Player of the Year Awards. Þá stóð goðsögnin gamla á níræðu. Hann lét þó ekki þar við sitja, enda margtilnefndur til Grammy verðlaunanna einnig. Árið 2007 hlaut hann Grammy-verðlaunin fyrir ævistarfið, Grammy Lifetime Achievement Award, og í ár var hann enn tilnefndur fyrir plötuna Pinetop Perkins and Friends, sem hann gerði í tilefni af 95 ára afmæli sínu á síðasta ári. Þar leika með honum meðal annarra B.B. King, Eric Clapton og fleiri snillingar . Hann var um árabil píanóleikari í hljómsveit Muddy Waters.

Pinetop Perkins er íslenskum blúsunnendum að góðu kunnur, hann spilaði um tíma með íslenskum blúsmönnum, Blue Ice Band (Vinir Dóra), í Chicago fyrir miðjan tíunda áratuginn, og spilaði einnig með þeim hér á landi. Hann hefur sjálfur sagt plötuna sem hann gaf út með Blue Ice Band – Vinum Dóra, sína bestu. Sú plata er mikið fágæti og notað eintak henni seldist fyrir fáum árum á 100 dollara, eða um ellefu þúsund krónur á netinu, en platan hefur lengi verið uppseld og ófáanleg. Það má því segja að Pintop Perkins sé guðfaðir blústónlistarinnar á Íslandi.

Plakat Blúshátíðar í stórri pdf upplausn er ýtið hér

Plakat Blúshátíðar í meðalstórri jpg upplausn er ýtið hér

gerum heiminn betri með blús

 

 

Blúskvöld 1. des

Blúsmenn Andreu.

            Devil´s Train.      

Veislustjóri Halldór Bragason.

 

Heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur 2008 er Ásgeir Óskarsson

Ásgeir Óskarsson trommuleikari hefur verið valinn heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur í ár. Þetta var tilkynnt við opnun Blúshátíðar í Reykjavík á Hilton Reykjavík Nordica. Með viðurkenningunni frá Blúsfélaginu fylgdi forláta Gretch trommusett af bestu gerð í þakklætisvott fyrir framlag til blústónlistarinnar. Ásgeir er einn virtasti trommari á Íslandi og hefur hann spilað með flestum stærstu hljómsveitum og tónlistarmönnum Íslands. Þeir listamenn sem áður hafa hreppt þessa heiðursnafnbót eru Magnús Eiríksson 2004, Björgvin Gíslason 2005, Andrea Gylfadóttir 2006, KK 2007.

Pétur Östlund afhendir Ásgeiri Óskarssyni Gretch trommusettið frá Tónastöðinni

 

Jólablús

Vinir Dóra   &  KK , Björgvin Gíslason 

Föstudaginn   21. desember, kl. 21 á Rúbín  Öskjuhlíð ,

gengið inn í björgin við hliðina á Keiluhöllinni www.rubin.is

UPPSELT ósóttar pantanir seldar kl 21 föstudag

Í miðjum erli aðventunnar, bjóða Vinir Dóra upp á tækifæri til að slaka á, njóta og hlusta á lifandi blús. Í blúsnum býr treginn, ómur af svita og tárum, en líka gleðin og hamingja þeirra sem rísa úr fjötrum og fjárhúsum heimsins til frelsis og birtu. Blúsinn er óðurinn til lífsins. Jólablús Vina Dóra verða öðru vísi aðventutónleikar, og gestir þeirra á tónleikunum eru :  KK , Björgvin Gíslason gítarleikari  og fleiri Vinirnir eru sem fyrr: Halldór Bragason gítarleikari   og söngvari  , Guðmundur Pétursson gítarleikari, Ásgeir Óskarsson trommuleikari og Jón Ólafsson bassaleikari. Þessir tónleikar eru einstakt tækifæri til að hvíla sig á veraldlegu amstri aðventunnar, og hlusta á bestu blústónlistarmenn landsins miðla sínum bestu gjöfum. Verð kr 2000 miðasalan opnar kl 19 föstudaginn   21  . desember á Rúbín.  

Ósóttar pantanir verða seldar kl 21.  föstudaginn   21  . desember, en takmarkað magn er í boði af miðum.

Blúsfélag Reykjavíkur  gerði KK, Kristján Kristjánsson  að heiðursfélaga , við setningu Blúshátíðar í Reykjavík 2007 á Nordica Hotel, KK hefur árum saman verið í fararbroddi í blústónlist á Íslandi, Á síðasta ári gaf hann út plötuna Blús, sem hlaut einróma lof gagnrýnenda.
Þeir sem áður hafa hlotið þessa heiðursnafnbót eru Magnús Eiríksson (2004), Björgvin Gíslason (2005) og Andrea Gylfadóttir (2006). Vinir Dóra hafa verið í fararbroddi blústónlistar á Íslandi síðan þeir hituðu upp fyrir John Mayall árið 1989 og hafa haldið hundruð tónleika boðið upp á blús eins og hann gerist bestur. Guðmundur Pétursson er einn besti gítarleikari á Íslandi og það er hrein unun að heyra hann í því sem hann er bestur; að spila blús með Vinunum. Vinir Dóra hljóðrituðu disk með blúsgoðsögninni Pinetop Perkins 1993, en hann fékk í fyrra Grammy verðlaun fyrir framlag sitt til tónlistar, „Lifetime Achievement Award“ .Pinetop er guðfaðir Vina Dóra í blúsnum. Þess má geta að Pinetop þykir diskurinn með Vinunum sín besta plata og kaupir hann af útgefanda í Chicago eintök til að selja á tónleikaferðum. Diskurinn Pinetop Perkins with the Blue Ice Band featuring Chicago Beau er enn á lista í  öðru sæti eftir 12 ár á www.cdmojo.com og orðin cult plata  seld á 80$ notuð. www.pinetopperkins.com . Gítargoðsögnin Björgvin Gíslason var gerður að heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur á Blúshátíð í fyrra Björgvin lagðist í blúsvíking til Missisippi á áttunda áratugnum og lék um tíma með blúsgoðsögninni Clarance “Gatemouth” Brown sem lést  nýlega 

 

__________________________

Þrumuvagninn Tónleikar 19.desember

Staður: “ Djúpið” (veitingahúsið Hornið)

Húsið opnar kl. 21:00. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl.22:00

Aðgangur ókeypis

Hljómsveitin sem var hugmyndasmíð Eiðs Arnar Eiðssonar söngvara starfaði á árunum 1980 – 1982 gaf út eina smáskífu og breiðskífuna Þrumuvagninn. Aðalsmerki hljómsveitarinnar var kröftugt og framsækið blús-rokk. Allt frá því að Eiður leysti hljómsveitina upp síðla árs 1982, stóð alltaf til að endurvekja hana því verkefninu var hvergi nærri lokið. Síðan eru liðin 26 ár.

Í nóvember 2006 hóaði Eiður saman nokkrum piltum á norðanverðu Snæfellsnesi og var sett saman efniskrá í anda Þrumuvagnsins þar sem settar voru saman syrpur með lögum eftir Led Zeppelin, Whitesnake, Deep Purple o.fl. Hljómsveitin viðraði svo herlegheitin með tónleikum á Rökkurdögum í Grundarfirði sama ár. Viðtökur voru svo magnaðar, að ekki var lengur til setunnar boðið.

Nú er Þrumuvagninn að verða endurskapaður að nýju, og er tónlistarstefnan í anda þess sem hugur stóð til á sínum tíma þ.e. þungur blús með rokkuðu ívafi.

Hljómsveitina skipa í dag:

Eiður Örn Eiðsson              Söngur/munnharpa

Atli Viðar Jónsson              Gítar

Pétur Hjálmarsson              Bassi

Sveinn B. Larsson              Trommur

Nikulás Róbertsson           Hljómborð

_____________

 

Surprise-party (forundrunarhóf) var haldið á Domo á afmælisdegi blúsarans Dóra Braga þ.6. nóvember s.l. þar sem nokkrir vinir Dóra og Gítarvinir.com gáfu honum forláta Fender Stratocaster gítar í afmælisgjöf. Um var að ræða svartan American Double Fat Strat með Sidewinder Humbucking Pickup (Neck) og Black Cobra Humbucking Pickup (Bridge). Hann er einnig með 5-Position Blade and 2-Position Push/Push S-1 rofa sem gerir hann "rofalega" fjölhæfan.
Fender Group hætti að framleiða þessa gítara árið 2003 og eru þeir þvi fremur fágætir í dag.
Þegar Dóri gekk í salinn var hann alveg grandalaus: "Mikið rosalega þekki ég marga hér á Domo!". "Og Júlli að taka myndir, er einhver blús í gangi?"
" ...og þegar Dóri fór að handfjatla Fender gítarinn, rak hann augun í texta aftan á gripnum þar sem stóð:
"Blúsunnendur á Íslandi vilja heiðra þig, Halldór Bragason, með þessum gítar, fyrir þrotlausa vinnu þína í þágu blústónlistar á Íslandi.
Megir þú vel njóta.
Blúsmenn Íslands."

Dóri hefur að blúsmanna sið gefið gítarnum nafn og heitir hann " Múhameð ".

_______________________

Mahalia Jackson Gospel og jólatónleikar

Esther Jökulsdóttir og karlasöngtríó halda Gospel/blues jólatónleika í Fríkirkjunni í Hafnarfirði á morgunn 18 des kl 20:30

Þetta verða ÓRAFMAGNAÐIR gospel/blues jólatónleikar þar sem flutt verða hennar helstu
þekktustu lög sem hún söng á sínum ferli.

Esther Jökulsdóttir fer fyrir fríðu föruneyti tónlistarmanna
þau eru Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanó, Helgi Egilsson Bassi og Kristinn Agnarsson trommur
Söngtríóið skipa þeir
Örn Arnarson, Skarphéðinn Hjartarson og Þorvaldur Þorvaldsson.


Spennandi tónleikar sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

 

 

Sannkölluð blúsveisla verður Föstudaginn 24. ágúst á Sandgerðisdögum Vinir Dóra, KK og Maggi Eiríks og Klassart ekki spurning að blúsvinir mæta en heyrst hefur að þetta verði einu tónleikar Vina Dóra á Íslandi í ár. Einnig verður Hattavinafélagið endurvakið. Allir mæta með blúshattana!

Sandgerðisdagar 2007
Föstudaginn - 24. ágúst


Gallerí
13.00 – 18.00 Ný vídd
13.00 – 18.00 Gallerí Grýti

Hátíðarsvæði
18.00 - 19:30 Amazing Race ratleikur fyrir alla
14.00 - 18.00 Bylgjan á staðnum

Hátíðarsvið 20.00 - 22.00
Setning hátíðarinnar
Thelma Björk – sólarljóð
Hattavinafélagið endurvakið
KK og Maggi Eiríks

Vitinn
18.00 - 22.00 Rólegt og rómantískt
22.30 - 01.00 Klassart
22.30 - 01.00 Vinir Dóra

Mamma Mía
23.00 - 03.00 Dansleikur

Samkomuhús
22.00 - 00:30 Unglingadiskó

nánar á vef Sandgerðisdaga hér

__________

 

Dagskrá

_______________________________________________________

Miðvikudagur 27. júní

Egilsstaðir Hótel Hérað Kl 21:00

Setningarhátíð JEA 2007

í boði Landsbankans

Hrafnaspark

Djasssmiðja Austurlands

_______________________________________________________

Fimmtudagur 28. júní

Neskaupstaður Hótel Egilsbúð Kl 21:00

Kr 1500, - Kauptu miða!

Djasssmiðja Austurlands

Ungir Djassarar af Austurlandi

Tríóið Flís
_______________________________________________________

Föstudagur 29. júní

Herðubreið Seyðisfjörður Kl 21:00

Kr 2200, - Kauptu miða

Stórtónleikar!!!

James Carter

Deitra Farr

The Riot
_______________________________________________________

Laugardagur 30. júní

Eskifjörður

Kirkju- og menningarmiðstöðin Kl 14:00

Kr 1500, - Kauptu Miða

Gospel með Deitru Farr og Andreu Gylfa

ásamt Riot og Gospelkór Fjarðabyggðar.

_______________________________________________________

Egilsstaðir

Afmælistónleikar JEA 2007

Fyrir utan KHB Kl 14:00 – 19:00

14:00 Ávarp Bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs,

FÍH heiðar Árna Ísleifs fyrir framlag sitt til tónlistar á Íslandi

14:20 Blúsbrot Garðars Harðar 15:00 15:30 16:20 16:50 17:35 18:30
The Pich Fork Rebellion
Lester Young tribute
Riot
Sean Walsh Band
Narodna Musica
Jagúar

Ýmislegt á seyði við tjaldið og í bænum!!

(tímasetningar gætu breyst)

_______________________________________________________

Stuðbandi ð Jagúar

Kl.22:00 í Valaskjálf

Kr 2200, - Kauptu miða

Hér geturðu fengið miða á JEA 2007. Þú sendir bara póst á

jonhilmar@hive.is

og færð miðana senda eða geymda þangað til þú kemur.

Í dagskrá hátíðarinnar sérðu verð á hverja tónleika fyrir sig.

Passi á alla tónleika hátíðarinnar er sem fyrr hlægilega ódýr og kostar aðeins

kr 5500 ,-

Skemmtið ykkur vel!!!

Dagskrá

_______________________________________________________

Miðvikudagur 27. júní

Egilsstaðir Hótel Hérað Kl 21:00

Setningarhátíð JEA 2007

í boði Landsbankans

Hrafnaspark

Djasssmiðja Austurlands

_______________________________________________________

Fimmtudagur 28. júní

Neskaupstaður Hótel Egilsbúð Kl 21:00

Kr 1500, - Kauptu miða!

Djasssmiðja Austurlands

Ungir Djassarar af Austurlandi

Tríóið Flís
_______________________________________________________

Föstudagur 29. júní

Herðubreið Seyðisfjörður Kl 21:00

Kr 2200, - Kauptu miða

Stórtónleikar!!!

James Carter

Deitra Farr

The Riot
_______________________________________________________

Laugardagur 30. júní

Eskifjörður

Kirkju- og menningarmiðstöðin Kl 14:00

Kr 1500, - Kauptu Miða

Gospel með Deitru Farr og Andreu Gylfa

ásamt Riot og Gospelkór Fjarðabyggðar.

_______________________________________________________

Egilsstaðir

Afmælistónleikar JEA 2007

Fyrir utan KHB Kl 14:00 – 19:00

14:00 Ávarp Bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs,

FÍH heiðar Árna Ísleifs fyrir framlag sitt til tónlistar á Íslandi

14:20 Blúsbrot Garðars Harðar 15:00 15:30 16:20 16:50 17:35 18:30
The Pich Fork Rebellion
Lester Young tribute
Riot
Sean Walsh Band
Narodna Musica
Jagúar

Ýmislegt á seyði við tjaldið og í bænum!!

(tímasetningar gætu breyst)

_______________________________________________________

Stuðbandi ð Jagúar

Kl.22:00 í Valaskjálf

Kr 2200, - Kauptu miða

Hér geturðu fengið miða á JEA 2007. Þú sendir bara póst á

jonhilmar@hive.is

og færð miðana senda eða geymda þangað til þú kemur.

Í dagskrá hátíðarinnar sérðu verð á hverja tónleika fyrir sig.

Passi á alla tónleika hátíðarinnar er sem fyrr hlægilega ódýr og kostar aðeins

kr 5500 ,-

Skemmtið ykkur vel!!!

20. Jasshátíð Egilsstaða

á Austurlandi!

nánar á www.jea.is

Miðvikudagur 27. júní

Egilsstaðir Hótel Hérað Kl 21:00

Setningarhátíð JEA 2007

í boði Landsbankans

Hrafnaspark

Djasssmiðja Austurlands

_______________________________________________________

Fimmtudagur 28. júní

Neskaupstaður Hótel Egilsbúð Kl 21:00

Kr 1500, - Kauptu miða!

Djasssmiðja Austurlands

Ungir Djassarar af Austurlandi

Tríóið Flís
_______________________________________________________

Föstudagur 29. júní

Herðubreið Seyðisfjörður Kl 21:00

Kr 2200, - Kauptu miða

Stórtónleikar!!!

James Carter

Deitra Farr

The Riot
_______________________________________________________

Laugardagur 30. júní

Eskifjörður

Kirkju- og menningarmiðstöðin Kl 14:00

Kr 1500, - Kauptu Miða

Gospel með Deitru Farr og Andreu Gylfa

ásamt Riot og Gospelkór Fjarðabyggðar.

_______________________________________________________

Egilsstaðir

Afmælistónleikar JEA 2007

Fyrir utan KHB Kl 14:00 – 19:00

14:00 Ávarp Bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs,

FÍH heiðar Árna Ísleifs fyrir framlag sitt til tónlistar á Íslandi

14:20 Blúsbrot Garðars Harðar 15:00 15:30 16:20 16:50 17:35 18:30
The Pich Fork Rebellion
Lester Young tribute
Riot
Sean Walsh Band
Narodna Musica
Jagúar

Ýmislegt á seyði við tjaldið og í bænum!!

(tímasetningar gætu breyst)

_______________________________________________________

Stuðbandi ð Jagúar

Kl.22:00 í Valaskjálf

Kr 2200, - Kauptu miða

Hér geturðu fengið miða á JEA 2007. Þú sendir bara póst á

jonhilmar@hive.is

og færð miðana senda eða geymda þangað til þú kemur.

Í dagskrá hátíðarinnar sérðu verð á hverja tónleika fyrir sig.

Passi á alla tónleika hátíðarinnar er sem fyrr hlægilega ódýr og kostar aðeins

kr 5500 ,-

Skemmtið ykkur vel!!!

 

Blúskvöld  eru á mánudögum á Classic Rock Ármúla 5 kl. 21

Ókeypis inn

Tónleikaröðin eru liður í vikulegum blúskvöldum á Classic Rock sem Blues Iceland Promotion stendur fyrir en það er félagsskapur sem leitast eftir að koma blústónlist á framfæri á Íslandi og kemur einnig að blúsþættinum Bölverk.

Myndir eftir hirðljósmyndara blússins Júlíus Valsson frá blúskvöldum á www.gitarvinir.co

 



| Um Hátíðina

Hátíðin er haldin til að heiðra og kynna fyrir tónlistaraðdáendum Hammondorgelið sem úrsmiðurinn Hammond töfraði úr huga sínum til að geta gert fátækum söfnuðum kleift að syngja við orgelundirleik.

Hugmyndina að henni og langstærstan heiður af framkvæmd hátíðarinnar á Svavar Sigurðsson.

DAGSSKRÁ HAMMONDHÁTÍÐAR 2007

Miðasala hjá Hlíf í síma 478-8113 eða 845-1104

Djúpavogsdagurinn 1500
Austfjarðarblús 1500
Agnar og Hrund 1000
Landsliðið 2500
Öll hátíðin 5000

DJÚPAVOGSDAGURINN
Fimmtudagur 31.maí kl. 20. 30 Hátíðin sett. Svavar Sigurðsson leikur ásamt heimamönnum á Hótel Framtíð. Fram kemur hljómsveitin Arachnophobia og leikur sitt landsfræga SANTANA prógramm.

AUSTFJARÐABLÚS
Föstudagur 1.júní kl. 20.30 Blúshljómsveitirnar Blúsbrot Garðars Harðar og félagar og Mæðusveitin Sigurbjörn leika á Hótel Framtíð.

ROKK, POPP, BLÚS OG GOSPEL
Laugardagur 2. júní
14.00 Ungir hljómborðsleikarar sýna hæfileika sína á Hammond.
17.00 Agnar Már Magnússon ásamt Hrund Ósk Árnadóttur.
20.30 Eðaltónleikar á Hótel Framtíð LANDSLIÐIÐ leikur listir sínar.

KIRKJULEGT
Sunnudagur 3. júní Hammond í Djúpavogskirkju.
Hammond notað í Sjómannadagsmessu og eftir leikin sjómannalög á Hammond.

Sjá nánar um alla þátttakendur undir TÓNLISTARMENN 2007 .


Einnig verður Hammond í Löngubúð þar sem hinir ýmsu listamenn koma fram alla daga.
Þessir atburðir verða nánar auglýstir á hátíðinni sjálfri.

Hafa samband

 

Takk fyrir komuna á Blúshátíð í Reykjavík

Þökkum öllum sem hafa lagt okkur lið að gera þetta að veruleika!

Hátíðin gekk mjög vel, með fernum frábærum og sjóðheitum tónleikum á Nordica og í Fríkirkjunni og klúbbnum á Domo öll kvöldin. Aðsókn var góð, hefði þó getað verið aðeins betri, en allt fór þetta fram í friði og spekt. Gestir Blúshátíðar voru hrærðir og snortnir af viðtökum íslenskra blúsvina og Ronnie Baker Brooks gaf vilyrði fyrir að koma aftur á hátíðina. Zora Young mun örugglega syngja oftar á Íslandi. Blúsfólkið okkar átti sinn stóra þátt í að Blúshátíðin varð svo glæsileg sem reyndin var: Blúsmaður ársins KK og Frakkarnir hans, Andrea og Blúsmenn hennar, Kentár, Lay Low, Brynhildur Björnsdóttir,  Goðsagnir Íslands og Blue Ice Bandið. Ungliðarnir sem komu fram á hátíðinni í ár voru virkilega góðir og staðfestu það að blúsinn á Íslandi á góða daga í vændum.

Sjálfboðaliðar Blúshátíðar voru margir og sinntu allt frá ýmiss konar snatti allt til ábyrgðarstarfa. Þeim eru færðar hjartans þakkir fyrir óeigingjarnt framlag og fórnfúst starf.

 Bakhjarla r  og samstarfsaðilar Blúshátíðar eru þeir sem gera það mögulegt að halda jafn glæsilega hátíð, og eru þeim færðar innilegar þakkir fyrir höfðingsskapinn. Fyrir þeirra tilstilli hefur það verið mögulegt að bjóða hingað besta blúsfólki sem völ var á, og stilla miðaverði jafnframt í hóf.

En án ykkar kæru blúsvinir, væri þetta ekki hægt. Ykkar áhugi er það sem þarf til að glæða eldinn. Við þökkum ykkur af öllu hjarta fyrir komuna og stuðninginn á liðnum árum, og vonumst til að sjá ykkur að ári.

 Útrás Blúshátíðar er hafin, og síðar í mánuðinum syngja dívurnar þrjár, Zora, Deitra Farr og Grana Louis, sem allar voru hér í fyrra, með Blue Ice Bandinu á Blúshátíðinni í Niðarósi.  www. nidarosbluesfestival.com og Zora og Blue Ice band leiku um helgina á www.djursbluesland.dk

Haldið áfram að kíkja inn á Blúsbloggið,   þar  verða áfram fréttir af ferðum íslenska blúsfólksins í Danmörku og   víðar  www.blues.blog.is

Myndir frá hátíðinni eru hér: www.gitarvinir.com/Myndir/myndir_april2007.htm

 

 


 

KK og Frakkarnir gerðu allt vitlaust og á Domo á eftir endaði Ronnie Baker Brooks og fl kvöldið með því að djamma

Blúsfélag Reykjavíkur sæmdi í dag tónlistarmanninn KK, Kristján Kristjánsson Blúsmann ársins, við setningu Blúshátíðar í Reykjavík 2007 á Nordica Hotel, en Blúsfélgið er systurfélag Blúshátíðarinnar.
KK hefur árum saman verið í fararbroddi í blústónlist á Íslandi, Á síðasta ári gaf hann út plötuna Blús, sem hlaut einróma lof gagnrýnenda.
KK kemur fram á Blúshátíð í ár.
Þeir sem áður hafa hlotið þessa heiðursnafnbót eru Magnús Eiríksson (2004), Björgvin Gíslason (2005) og Andrea Gylfadóttir (2006).

 

BLÚSHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 2007

Þriðjudagur 3.apríl

  Nordica Hotel kl. 17, setning í samstarfi við Rás 2

Blúslistamaður heiðraður

Blúsdjamm

 

Stórtónleikar á Nordica Hotel kl 20  

KK & Frakkarnir sérstakur gestur Andrea

• Jolly Jumper & Big Moe frá Noregi

• Ungir og upprennandi blúslistamenn

Miðasala á Nordica Hotel frá 18.30

 

Klúbbur Blúshátíðar á Domo frá kl 22  

Blúsjamm

• Ungir og upprennandi blúslistamenn

 

Miðvikudagur 4.apríl

 Stórtónleikar á Nordica Hotel kl 20

Kraftar alheimsins

  • Ronnie Baker Brooks og hljómsveit frá Bandaríkjunum

• Kentár 25 ára afmæli

• Ungir og upprennandi blúslistamenn

Miðasala á Nordica Hotel frá 18.30

 

Klúbbur Blúshátíðar á Domo frá kl 22  

25 ára afmælishátíð Kentár og blúsjamm

• Ungir og upprennandi blúslistamenn

 

Skírdagur 5.apríl

Stórtónleikar á Nordica Hotel kl 20

Zora Young og the Blue Ice band

Lay Low og hljómsveit

• Ungir og upprennandi blúslistamenn

Miðasala á Nordica Hotel frá 18.30

 

Klúbbur Blúshátíðar á Domo frá kl 22  

• Ungir og upprennandi blúslistamenn og fl.

 

Föstudagurinn langi 6. apríl kl 20

Fríkirkjan í Reykjavík

Sálmar og Gospel

Zora Young, Andrea Gylfadóttir, KK,Lay Low, Brynhildur Björnsdóttir og Goðsagnir Íslands

 

Klúbbur Blúshátíðar á Domo frá kl 22  

Lokapartý blúsjamm

 

Nánari upplýsingar á vefnum

 

Næstu 2 vikur helgaðar Blúshátið í Reykjavík:

Konsert er á dagskrá mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 20:30 til klukkan 22:00.

12.3.2007:

Grinders undir forystu KK á Blúshátíð í Reykjavík 2005.

13.3.:

Kentár á Hótel Borg 2005, en sveitin heldur upp á 25 ára afmæli sitt á Blúshátíð í Reykjavík 2007.

14.3.:

Smokey Bay Blues band undir forystu Pollock-bræðra á Borginni 2005.

15.3.:

Þáttur um Ronnie Baker Brooks sem mun leika á Blúshátíð í Reykjavík 2007.

_____________________________________________________________

Blúskvennavika :)

19.3.:

Blúsmenn Andreu á Nordica hóteli 2005.

20.3.:

Þáttur um Zoru Young – Halldór Bragason verður gestur þáttarins.

21.3.:

Deitra Farr og Vinir Dóra á Blúshátíð 2005.

22.3.

Þáttur  með Lay Low, sem mun troða upp á Blúshátíð í Reykjavík 2007.

Konsert

 

Konsert verður tileinkaður Blúshátíð í Reykjavík, næstu tvær vikurnar .

Í þættinum Konsert spilar Andrea tónleikaupptökur víðs vegar að úr heiminum, einkum þó hljóðritanir frá evrópskum ríkisútvarpsstöðvum. Það þýðir að Rás 2 fær upptökur frá mörgum helstu útihátíðum í Evrópu. Sem dæmi má nefna tónlistarhátíðirnar í Benicassim á Spáni, Montreux í Sviss, Oxygen á Írlandi og síðast en ekki síst Hróarskeldu-hátíðina í Danmörku.

Konsert er á dagskrá mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 20:30 til klukkan 22:00.

Hægt er að senda Andreu tölvupóst um tónleika og fleira

Senda Andreu póst

__

 

 

The Riot    í Múlanum á Domo fimmtudaginn 15.2.   kl 21.00  

Húsið opnar kl 20.00 miðasala við innganginn verð 1000 kr

   

Landskunnir tónlistarmenn  leiða saman hesta sína í nýrri sveit, The Riot

 Gítarleikarar eru  Halldór Bragason og Björn Thoroddsen með þeim í hljómsveitinni verða þeir  Jón Ólafsson píanóleikari,  Ásgeir Óskarsson trommuleikari og Jón Rafnsson, bassaleikari.

_______________________________

Bubbi Morthens blúsar

Lame Dudes mun sjá um upphitun.
Á mánudagskvöldið 21.1 á Classic Rock í Ármúla mun Bubbi mæta á svæðið með kassagítarinn og leika nokkur vel valin blúslög. Honum til fulltingis verður Guðmundur Pétursson gítarleikari.Tónleikarnir eru liður í vikulegum blúskvöldum á Classic Rock sem Blues Iceland Promotion stendur fyrir en það er félagsskapur sem leitast eftir að koma blústónlist á framfæri á Íslandi og kemur einnig að blúsþættinum Bölverk.

_____________________________

Nýverið var undirrituð viljayfirlýsing milli Blúshátíðar í Reykjavík og Félag enskukennara á Íslandi (FEKÍ)  um a ð stuðla að þróun blúsfræðslu í skólum. Blúshátíð í Reykjavík mun leitast við að kynna blús í skólum og aðstoða við fræðslu . FEKÍ mun leitast við að kynna blús í skólum og stuðla að frekari þróun verkefna. Eftirfarandi eru markmið og ávinningur

· Að fræða og um leið skemmta nemendum

· Stuðla að sjálfstæðri sköpun nemenda

· Auka getu til að hugsa og leysa vandmál

· Auka menningarvitund nemenda og kennara.

· Auka umburðarlyndi í fjölmenningarlegu umhverfi

· Auka sjálfstraust nemenda

· Vinna gegn kynþáttafordómum

Nýverið var Blúshátíð í Reykjavík,  Halldór Bragason og KK í samstarfi við FA , Fjölbrautaskólan n við Ármúla og gerðust þeir félagar gestakennarar í enskudeild FA .  Á milli laga kynntu þeir blústónlistina og sögu hennar. Samræður fóru að sjálfsögðu allar fram á ensku en það virtist ekki koma í veg fyrir nemendur spyrðu þá félaga spjörunum úr. Tónlistarmennirnir komu í tímann í tengslum við lestur á bókinni To Kill a Mockingbird eftir rithöfundinn Harper Lee, en bókin gerist í Suðurríkjum Bandaríkjanna á millistríðsárunum. Það eru þær Kirsten M. Swenson og Dóra Ósk Halldórsdóttir sem kenna enskuáfangann. Þær segja að það sé greinilegt að nemendur öðlist dýpri skilning á verkinu og umhverfi þess í gegnum tónlistina og kynningu tónlistarmannanna. Sumir nemendur hafi síðan í framhaldinu samið blústexta!

____________________

Vinir Dóra jólablús

Domo Þingholtsstræti,

Laugardaginn 16. desember, kl. 21

 

Í miðjum erli aðventunnar, bjóða Vinir Dóra upp á tækifæri til að slaka á, njóta og hlusta á lifandi blús. Í blúsnum býr treginn, ómur af svita og tárum, en líka gleðin og hamingja þeirra sem rísa úr fjötrum og fjárhúsum heimsins til frelsis og birtu. Blúsinn er óðurinn til lífsins.

Jólablús Vina Dóra verða öðru vísi aðventutónleikar, og gestir þeirra á tónleikunum eru þrír óumdeildir snillingar: blúsdrottningin Andrea Gylfadóttir, Björgvin Gíslason gítarleikari og Davíð Þór Jónsson hammondleikari.

Vinirnir eru sem fyrr: Halldór Bragason gítarleikari, Guðmundur Pétursson gítarleikari, Ásgeir Óskarsson gítarleikari og Jón Ólafsson bassaleikari.

þessir tónleikar eru einstakt tækifæri til að hvíla sig á veraldlegu amstri aðventunnar, og hlusta á bestu blústónlistarmenn landsins miðla sínum bestu gjöfum.

 

___________________________

KK blús

Platan inniheldur 12 af uppáhalds blúslögum KK, lög sem hann hefur verið að syngja og spila s.l. 30 ár. Allir textarnir eru á íslensku og koma úr smiðju Braga Valdimars Skúlasonar.

Í blúsbandinu eru Guðmundur Pétursson gítarleikari, Þorleifur Guðjónsson bassi, Friðrik Júlíusson G. trymbill. Sigurður Flosason leikur á saxófón en Nashvillekapparnir Jim Hoke á saxafón og Neil Rosengarden trompetleikarisjá um annan lúðrablástur. Sigurður Guðmundsson úr Hjálmum spilar á hljómborð. Upptökustjórn var í höndum Guðm. Kristins Jónssonar en þær fóru fram í Geimsteini og í OMNIsound studios í Nashville í Maí og Júní.

________________________________________________________

Bergþór Smári úr Mood spilar ásamt góðum gestum á Café Rosenberg,

Lækjargötu, föstudaginn 6. október og laugardaginn 7. október.

Tónleikarnir hefjast klukkan 23:00 bæði kvöldin.

Heimasíða Mood er www.mood.is

______________________

Gítarleikarinn Greg Koch og trió veða með nÁmskeiÐ og tónleika 9.okt. á Hótel Borg.
Námskeiðið er  á vegum Fender Europe í samstarfi við Hljóðfærahúsið.
  Greg Koch  er frá  Milwaukee þar sem hann ólst upp, hann eignaðist sinn fyrsta gítar 12 ára gamall eftir að hann var orðinn þreyttur á að reyna spila Jimi Hendrix lög á celló.Eftir að hafa  numið jazzgítarleik í the University of Wisconsin í fjögur ár vann hann fyrstu verðlaun í "Bluesbr ea ker Guitar Showdown” keppninni, í dómnefnd var hin frægi Bluesleikari Buddy Guy. Greg stofnaði eigin hljómsveit  ,Greg Koch and the Tone Controls, sem varð fljótt þekkt fyrir frábæran flutning á Blues og vann hún titilinn Wisconsin Music Awards fyrir Blues listamenn árin 1993, 1995 og 1998 . Hljómsve i tin hefur gefið út fimm hljómplötur. Greg hefur haldið námskeið á vegum Fender gítarverksmiðjunnar víða um heim og þykja námskeið hans einstaklega lífleg þar sem húmor er yfirleitt í fyrirrúmi. Greg hefur gefið út mikið  af kennsluefni á vegum Hal Leonard útgáfunnar, bæði bækur og DVD sem meðal annars fjalla um gítarleik Stevie Ray Vaughan. Nánari upplýsingar  verða gefnar eftir því sem nær dregur.
www.gregkoch.com og  www.hljodfaerahusid.is Tónlekarnir  hefjast kl.20.00 Aðgangur er ókeypis meðan húsrúm leyfir.

_________

 

Blúsflytjandi ársins 10 .07.06.

Okkur langaði til að kynna blúsflytjendur ársins aðeins betur.

Eins og menn vitaþá fór Rás 2 af stað með verkefni sem þeir kölluðu Blúsflytjandi ársins 2006 og voru verðlaun að fá að spila á Blúshátíð á Ólafsfirði! sem og Studio tímar hjá Mogo Music

Þegar upp var staðið var búið að velja 2 keppendur til úrslita, kosning fór fram! þegar upp var staðið munaði það litlu á atkvæðum að ákveðið var að lýsa báða flytjendur sigurvegara og fengu báðir keppendur að sjálfsögðu að koma og spila á blúshátíð á Ólafsfirði! sjá myndir á www. olafsfjordur.is/blues

Blúsflytjendur árisins voru sem sagt:

Mr. Mustard and his sister Pam - Bottle of blues
Smári Guðmundsson og Fríða Dís Guðmundsdóttir frá Sandgerði

Tómas Axel Ragnarsson - Nothing to worry about blues

Óskum við þessum einstaklingum innilega til hamingju

Einnig viljum við þakka Rás 2 kærlega fyrir þetta frábæra framtak og blúsflytjandi ársins er kominn til að vera!

 

 

Dagskrá og miðasala á Blúshátíðina á Ólafsfirði 6-8 júlí upplýsingar á www.olafsfjordur.is

 

Blúshátíð Ólafsfirði 2006

Fimmudagur 6.7

Fimmtudagskvöldið verður undirlagt undir hlátur og gleði, og verður sannkallað skemmtikvöld í Tjarnarborg kl 21.

Hundur í Óskilum , Túpílakar og Hvanndalsbræður en þessi bönd eru þekkt fyrir að spila sína útgáfu af hlutunum og gera það „skemmtilega“


Kynnir verður Júlli Júll.

Föstudagur 7.7

Blús í Sparisjóðnum kl 15

Tjarnarborg kl 21.00

Landsliðið :The Legends blues band

Andrea Gylfadóttir söngur, Berglind Björk söngur Guðmundur Pétursson gítar, Björgvin Gíslason gítar, Halldór Bragason gítar, söngur, Sigurður Sigurðsson munnharpa söngur, Einar Rúnarsson hammond orgel, Birgir Baldursson trommur , Róbert Þórhallsson bassi.

Veröndin: Björgvin Gíslason, Guðmundur Pétursson ,Halldór Bragason, Sigurður Sigurðsson.

Blúsflytjandi ársins úrslit í samvinnu heimamanna og Rás 2

Danni & Jón Ingiberg

  Laugardagur 8.7 .

Tónleikar í kirkjunni  kl 16 30

Zora Young , Andrea & Berglind Björk

Davíð Þór Jónsson Píanó

 

Tjarnarborg kl 21.00

Zora Young and the Blue Ice Band: Guðmundur Pétursson gítar, Halldór Bragason gítar, Davíð Þór Jónsson Hammond, Birgir Baldursson trommur, Róbert Þórhallsson bassi, Andrea & Berglind Björk raddir

Lísa Hauks, Gísli Hvanndal Jakobsson, Sævar Sverris,Svava Jóns & Tröllaskagahraðlestin

Uppákomur í bænum laugardag

 

12.00 Hraðbátaferðir á vatninu

13.00 Útimarkaður

Útigrill að hætti Blúsmanna grillaðar pylsur .kjúklingur og Lambakjöt og kartöflusalat og Chilibaunir með ekta Texas grillsósu.

Uppboð á Blúsmynjagripum og fl.

14.00 Blúsarar og fl. taka lagið fyrir börn og unglinga á öllum aldri.

Dagskrá fyrir börnin.

Námskeið kl 14. Björgvin Gíslason og Sigurður Sigurðsson

 

Dagskrá gæti breyst eitthvað

 

 

HALLDÓRI BRAGASYNI BOÐIÐ AÐ LEIKA Á BLÚSHÁTÍÐINNI Í CHICAGO

Zora Young, einn af gestum vel heppnaðrar Blúshátíðar í Reykjavík nú fyrir páska, hefur boðið Halldóri Bragasyni gítarleikara, að leika með sér á tónleikum hennar á aðalsviði Blúshátíðarinnar í Chicago 10. júní. Zora Young hefur um árabil verið í metum sem ein besta blússöngkona Bandaríkjamanna. Hún hefur haldið tónleika með hljómsveit sinni um allan heim, og hefur komið fram með öllum helstu blústónlistarmönnum Bandaríkjanna.

Blúshátíðin í Chicago er árlegur listviðburður, þar sem fram koma allir bestu blústónlistarmenn heims. Hún er stærsta og virtasta blúshátíð á byggðu bóli, og jafnframt stærsta tónlistarhátíð í Chicago. Hana sækja árlega um 800 þúsund manns. Það er embætti borgarstjórans í Chicago sem heldur hátíðina, með fulltingi virtra styrktaraðila, eins og AT&T, Chicago Tribune, Chicago Transit Authority, Gibson Guitar, Louisiana Office of Tourism, Mississippi Development Authority Tourism Division og fleiri.

Hátíðin var stofnuð árið 1984, þegar Chicagobúar minntust þess að ár var liðið frá andláti þeirra stærstu goðsagnar í blúsnum, Muddy Waters. Hátíðin stendur í fjóra daga, frá fimmtudegi til sunnudags, og er leikið á sex sviðum í Grant garðinum við Michiganvatnið frá morgni til kvöld.

Það er mikill heiður fyrir Halldór að fá tækifæri til að leika á Blúshátíðinni í Chicago. Halldór er þó ekki ókunnugur hátíðinni, því árið 199 3 leik hann með Vinum Dóra og goðsögninni Pinetop Perkins á hátíðinni.  Halldór hefur leikið blús á Íslandi og erlendis um árabil og á hvað stærstan þátt í vakningu blústónlistarinnar hér á landi. Hann er listrænn stjórnandi Blúshátíðar í Reykjavík.

Þótt Blúshátíð í Reykjavík sé afstaðin, og hafi gengið frábærlega vel, hefur Halldór í mörgu að snúast. "Næstu tónleikar eru alltaf þeir mikilvægustu sem maður spilar," segir hann, en í þessari viku einbeitir hann sér að undirbúningi tónleika á hátíð Hammondorgelsins, sem haldin verður á Djúpavogi, 22-25 apríl.

Blúshátíð í Reykjavík 2006

Blúshátíð vill þakka öllum fyrir komuna á Blúshátíð og öllum þeim sem lagt hafa Blúshátíð í Reykjavík 2006 lið.

Fréttir

Lokakvöld Blúshátíðar á föstudaginn langa.

Í Fríkirkjunni var stemming eins og gerist í kirkjum í höfuðborg blússins Chicago þegar Dívurnar sungu sálma og gospel og þakið af Fríkirkjunni ætlaði af slíkt var fjörið. Alvarleiki dagsins var þó aldrei langt undan og vasaklútar sáust á lofti til að þurrka tár slík var upplifunin. Dívurnar létu engan ósnortinn þetta yndislega kvöld í troðfullri kirkjunni.

Grana' Louise var hrærð yfir móttökum tónleika gesta sem risu á fætur um miðbik tónleikana og klöppuðu eftir magnaðan flutning hennar.

Zora Young

Deitra Farr

Karl Olgeirsson leik á píanó, Jón Rafnsson á bassa, Ásgeir Óskarsson á trommur og Eðvald Lárusson á gítar. Dívurnar sögðu að þær ætluðu að taka þá með sér til Chicago, þeir væru svo góðir.

 

Blúsdívurnar frá Chicago, Deitra Farr, Zora Young og Grana' Louise og Vinir Dóra slógu í gegn á Nordica hotel

Grana' Louise byrjaði og söng hefðbunda blúsa og kraftur hennar og og tilfinning hreif með sér salinn frá fyrsta lagi.

Deitra Farr kom næst á sviðið og labbaði hún út í sal í blúsnum "Mean old world" og söng án hljóðnema við undirleik Vina Dóra.

Zora Young söng með Vinum Dóra síðasta hlutann og mátti sjá tár á hvarmi gesta í laginu "Toxic".

Zora Young sýndi líka á sér aðrar hliðar í funki og R&B við þétt blús og funkgrúv hljómsveitarinnar.Zora Young á ekki langt að sækja blúsinn hún er náfrænka hins goðsagnakennda Howling Wolf.

Kvöldinu lauk með að Dívurnar sungu .

Fullt var útúr dyrum annað kvöldið í röð á Blúshátíð í Reykjavík

Fjallaskáldin riðu á vaðið og sýndu fram á tengsl Kristjáns fjallaskálds við blúsinnog sungu ljóð hans að hætti Missisippi Delta blúsmanna. Tónleikagestir upplifðu svo sannkallaða blússtemmingu á veröndinni með Dóra Braga, Bjögga Gísla Gumma P. og Sigga Sig. Guðmundur sat með kjöltugítar og framkallaði seiðandi tóna í lágstemmdri tónlist þeirra.

Eftir hlé stigu Krummarnir á svið og komu mjög á óvart og þarna eru að ferð mjög efnilegir tónlistamenn. Þeir blönduðu ólikum stíltegundum saman blús, funki og djass og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.

Fruteland Jackson kom á óvart þetta, mikla sjarmatröll heillaði gesti uppúr skónum og sögur hans og lög fóru vel í tónleikagesti. Allt frá vinnusöngvum fanga til taktfastar kalypso tónlistar karabíska hafsins. Kannski væri réttnefni að kalla hann Krútt-land Jackson svo miklir eru persónutöfrar þessa geðþekka sendiherra blússins.Kvöldið endaði með því að Dóri Braga, Bjöggi Gísla Gummi P. og Siggi Sig. spiluðu með Fruteland Jackson nokkur lög og þegar gestir gengu út í nóttina eftir ánægulegt kvöld á Nordica hotel brosti við þeim fullt tungl í allri sinni fegurð.

Andrea Gylfadóttir heiðruð fyrir framlag sitt til blústónlistar á Íslandi.

Blúshátíð í Reykjvík var sett þriðjudaginn 11. kl 17 og við það tækifæri veitti Blúsfélag Reykjavíkur Andreu Gylfadóttir viðurkenningu og gerði að heiðursfélaga, hún var síðan hlaðin gjöfum frá velunnurum Blúshátíðar og fékk hún m.a: flugmiða fyrir tvo á leiðum Icelandair, gæða Sure hljóðnema frá Tónabúðinni, Gjafabréf frá Horninu en í þar í Djúpinu stigu margir blúsarar sín fyrstu skref, kassa af eðalbjórnum Premium frá Egils, blóm frá Burkna og fl. Andrea Jónsdóttir útvarpskona afhenti verðlaunin.

Nánast fullt var síðan á fyrstu stórtónleikana um kvöldið og mikil stemming fólk talaði um hvað íslenskur blús væri efnilegur og ætti glæsta framtíð eftir að Bumcats og blússveit Þollýar höfðu lokið leik.

Bumcats

Skaf

tók svo við með höfðingjann Björgvin Gíslason fremstan meðal jafningja,

svo bættust Andrea og Páll Rósinkranz í hópinn og gerðu allt vitlaust.

Frábær aðstaða er fyrir áheyrendur og tónlistarmenn á Nordica hotel og sögðu menn að hljómburður væri með því besta sem menn hefðu heyrt. Enn er kannski hægt að fá einhverja miða á Blúshátíð en þeim fer ört fækkandi.

Myndir Júlíus Valsson

 

Dagskrá

Þriðjudagur 11.apríl

  Nordica Hotel kl. 17, setning í samstarfi við Rás 2

Blúslistamaður heiðraður og blúsdjamm.

 

Stórtónleikar á Nordica Hotel kl 21  

Andrea Gylfadóttir  Páll Rósinkranz

Skaf

Björgvin Gíslason, Sigurður Sigurðsson, Eðvarð Lárusson, Birgir Baldursson,

Einar Rúnarsson og Georg Bjarnason

• The Bumcats

Tommi, Pétur, Snorri , Helgi, Esther

• Blússveit Þollýar

Þollý Rósmundsdóttir, Magnús Axel Hansen, Björgvin Óskarsson,

Lovísa Sigrúnardóttir, Benjamín Ingi Böðvarsson

• Óvæntur leynigestur!

 

Miðvikudagur 12.apríl

 Stórtónleikar á Nordica Hotel kl 21

• Fruteland Jackson frá Missisippi

Á veröndinni með Dóra Braga, Bjögga Gísla Gumma P. og Sigga Sig.

Krummarnir

Hrafnkell , Snorri, Magnús , Helgi og Kristján

Blúsuð ljóð eftir Kristján fjallaskáld Jónsson

Hlöðver, Tommi, Rúnar

Óvæntur leynigestur!

 

Skírdagur 13.apríl

Stórtónleikar á Nordica Hotel kl 21

3 Dívur frá Chicago

  Deitra Farr Zora Young & Grana' Louise

& Vinir Dóra

 

Föstudagurinn langi 14. apríl kl 20

Fríkirkjan í Reykjavík

Sálmatónleikar 3 Dívur frá Chicago

Zora Young, Deitra Farr, Grana' Louise, ásamt Fruteland Jackson

Eðvarð Lárusson ,Jón Rafnsson og Ásgeir Óskarsson og fl.

www.zorayoung.com www. granalouise.com www.deitrafarr.com

www.fruteland.com

Hljóð: Jón Skuggi

Hljóðkerfi frá Hljodx & Nordica Hotel

 
 


 

Kentár á Næstabar fimmtudaginn 4. maí


Fyrstu tónleikar Kentára í Reykjavík í háa herrans tíð verða á Næstabar Ingólfsstræti, Reykjavik fimmtudaginn fjórða maí.

 

 

Fjórar amerískar blússtjörnur á Blúshátíð í Reykjavík um páska
Blúsdívurnar frá Chicago, Deitra Farr, Zora Young og Grana' Louis, og Mississippiblúsmaðurinn Fruteland Jackson verða aðalgestir Blúshátíðar í Reykjvík, auk rjómans af íslenskum blústónlistarmönnum, en hátíðin fer fram á Nordica Hotel dagana 11.-13. apríl og í Fríkirkjunni á föstudaginn langa.

Blúshátíð í Reykjavík verður sett þriðjudaginn 11. apríl og á stórtónleikum á Nordica kl. 21 koma fram Andrea Gylfadóttir Páll Rósinkranz, Skaf og ungliðar blússins.

Fruteland Jackson fer með gesti í blúsferð um árósa Mississippi á stórtónleikum á miðvikudagsköld, en þar koma einnig fram á veröndinni: Bjöggi Gísla, Gummi P., Dóri Braga, Siggi Sig., Krummarnir, Fjallaskáldin og óvæntur leynigestur.

Skírdagskvöld taka Dívurnar þrjár völdin með Vinum Dóra, en að kvöldi föstudagsins langa, syngja þær gospel og sálma ásamt Fruteland Jackson og íslenskum tónlistarmönnum í Fríkirkjunni í Reykjavík.

Blúshátíð í Reykjavík hefur aldrei boðið upp á jafn glæsilega og fjölbreytta dagskrá. Síðustu ár hefur verið fullt út úr dyrum á tónleika hátíðarinnar og færri komist að en vildu . Það vita allir hvers megnugt okkar frábæra blúsfólk er, og það er því stórviðburður að fá þessa fjóra erlendu blúslistamenn hingað til lands til að til að koma fram með þeim og mikill fengur fyrir íslenskt blúsáhugafólk.Tryggið ykkur miða

Borðapantanir á Blúshátíð í Reykjavík á VOX
Þeir sem ætla að tryggja sér  góð borð á Blúshátíð í Reykjavík geta haft samband við VOX en veitingasalir þeirra eru opnir gestum Blúshátíðar á hátíðinni. Sæti verða að sjálfsögðu fyrir alla gesti.
Veitingahúsið VOX á Hótel Nordica ætlar að bjóða uppá sérstakan matseðil í tilefni Blúshátiðar 

Hér er vefur Chicago Blues Festival .Hugmyndir hafa komið fram að fjölmenna frá Íslandi á hátíðina  á næsta ári 2007 ef þið hafið áhuga á því að fara í þá ferð sendið  tölvupóst á blues@blues.is merkt Chicago 2007. Endilega skráið ykkur á póstlita félagssins hér til hliðar .

 

Eitt og annað um gesti blúshátíðar

Andrea Gylfadóttir

ein besta og virtasta söngkona þjóðarinnar. Hún sýndi það og sannaði á blúshátíð í fyrra að hún er drottning blússins á Íslandi sönn Diva. Andrea kemur fram með Skaf með nýtt efni.

Páll Rósinkranz

Páll er slíkum hæfileikum gæddur að rödd hans lætur engan ósnortinn. Hann er vaxandi blússöngvari og hefur verið undir verndarvæng Dóra Braga í blúsnum og sungið á tónleikum með Vinum Dóra. Nú ætlar hann hins vegar að syngja við undirleik meðlima Skafs.

Skaf það þarf ekki nema að líta á liðskipan þessarar sveitar til að sjá að hér eru góðir tónlistarmenn innanborðs: Björgvin Gíslason gítar, Sigurður Sigurðsson munnharpa, Eðvarð Lárusson gítar, Birgir Baldursson trommur,Einar Rúnarsson Hammond og Georg Bjarnason á bassa.

Björgvin Gíslason var gerður að heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur á Blúshátíð í fyrra Björgvin lagðist í blúsvíking til Missisippi á áttunda áratugnum og lék um tíma með blúsgoðsögninni Clarance “Gatemouth” Brown sem lést á síðasta ári

Drottning Chicago blúsins Deitra Farr

Deitra Farr er ekki ókunnug okkur Íslendingum en við höfum áður fengið glatt tóneyrað og blússálina við ómældra listræna hæfileika hennar og tjáningarríkan söng. Núna heimsækir hún okkur enn og aftur og í þetta sinn fylgja henni blússtjörnurnar, Zora Young og Grana Louise. Það er einstakt undur að hafa sameinað þessar kraftmiklu söngdívur á einu sviði. Tækifæri bæði kvöldin sem ekki er hægt að missa af

Í fyrra á tónleikum á föstudaginn langa söng Deitra Farr nokkra þekkta sálma upp úr sálmabók afa síns sem hún hafði tekið með sér að heiman og hreif áhorfendur með sér bæði í rólega íhugun og banastuð þegar hún söng sálminn “This little light of mine” þannig að allir kirkjugestir voru farnir að klappa með. . Ekki verður um villst hvernig negrasálmar og blús eru tengd órjúfanlegum böndum og úr varð í kirkjunni upplifun sem verður lengi í minnum höfð þar sem tónlistin réði ríkjum en tilefni dagsins og alvara voru þó aldrei langt undan .www.deitrafarr.com

Zora Young er stundum nefnd „Blússprengjan“

þessi orkumiklar söngkona er eftirsótt og hefur komið fram með mörgum þekktum blúslistamönnum eins og Junior Wells, Jimmy Dawkins, Buddy Guy, Willie Dixon, Sunnyland slim, Mississippi Heat, Paul deLay og B.B. King. Strax í barnæsku sinni var Zora Young farin að syngja og söng þá mest gospel í kirkjunni sinni í Mississippi. Og gospelsöngnum hélt hún áfram eftir að hún fluttist ung að árum til Chicago. Söngur hennar þróaðist síðar á fullorðins árum gegnum R/B tónlist yfir í blúsinn. Og í dag hefur Zora Young tilheyrt Chicagoblúsnum í 30 ár og er í dag virt um heim allan sem leiðandi afl og frumkvöðull innan Chicagoblúsins. Zora Young hefur verið vinsæl í Evrópu jafnt sem heima fyrir og hefur til að mynda sungið í Norður-Ameríku, Ítalíu, Þýskalandi, Belgíu, Svíþjóð, Frakklandi, Swiss, Grikklandi, Austurríki og staða eins og Tai Pei og Tyrklandi. Hún hefur gefið út plötur með öðrum og líka þó nokkrar sólóplötur. Veffang: www.zorayoung.com

Beint úr hjarta blúsins í Chicago, kemur Grana' Louise.

Grana´ Louise er blúsinn holdgerður. Hún er einfaldlega ein frábærasta blússöngkona Chicago. Kraftmikil rödd hennar djúp og eilítið hrúf streymir beint frá hjartanu með ómengaðan hráan blúes sem sendir hroll niður eftir hryggnum og fær líkama og hjarta til að blæða. Grana´ Louise er einstaklega skemmtilegur flytjandi og er framkoma hennar flestum ógleymanleg. Hún er þekkt um heim allan sem kraftmikil bluessöngkona en auk þess semur hún tónlist og er einnig tónlistarútgefandi. Einstæð og innblásin blúestúlkun hennar dregur stöðugt að sér fleiri og fleiri einlæga elskendur blúsins

Grana´ Louise heldur úti mjög góðri vefsíðu www.granalouise.com og hvet ég alla til að kíkja þar inn ef þeir vilja vita meira. Hún er með mörg járn í eldinum og virðist hafa óstöðvandi orku. Á heimasíðunni sést hverjum hún hefur spilað með og þá líka þau verðlaun sem hún hefur unnið til, útgefnar hljómplötur og uppkomandi tónleikar.

 

Fruteland Jackson

Blúsmaður með Mississippi í æðum, en hann kemur fram á Blúshátíð í Reykjvík um páskana ásamt þrem fremstu blúsdrottingum Chicago og breiðri flóru af íslenskum blúsmönnum. Fruteland Jackson kemur fram á gospel og sálmatónleikum í Fríkirkjunni á föstudaginn langa en þar koma einnig fram blúsdívurnar Zora Young, Deitra Farr og Grana Louise ásamt íslenskum tónlistarmönnum. Fruteland verður líka aðalgesturinn á stórtónleikum á Nordica Hotel miðvikudagskvöldið 12. apríl kl. 21. Fruteland er margverðlaunaður blússöngvari, með djúpar rætur í blúshefðinni sem spratt við árósa Mississippi en þar fæddist hann. Nýjasta platan hans, Blues 2.0, sem kom út árið 2004, fékk rífandi góða dóma, og var tilnefnd til W.C Handy verðlaunanna sem besta akústíska blúsplata þess árs.2004 -  W. C. Handy Nominee for Best Album

Fruteland starfar nú í Chicago. www.fruteland.com

Bjöggi Gísla, Gummi P. Dóri Braga & Siggi Sig

Það hlýtur að teljast stórviðburður þegar þessir fjórir koma saman til að spila. Þetta gera þeir Bjöggi Gísla, Gummi P. Dóri Braga og Siggi Sig. munnhörpuleikari á tónleikum á Blúshátíð í Reykjavík, miðvikudagskvöldið 12. apríl á Nordica. Það sem gerir þennan viðburð ekki síður merkilegan er að þarna verða þeir í fyrsta sinn saman á sviði.
Fjórmenningarnir bjóða til sannkallaðrar verandarstemmningar að hætti blúsmanna í Mississippi forðum,þegar blúsinn var í árdaga. Þjóðsaga í Mississippi segir að ef blúsmenn biðu við krossgötur í myrkri þá myndi Legba koma og stilla gítarinn eða blása í munnhörpu blúsmanna.Þetta hefði þau áhrif að blúsmenn gætu dáleitt áheyrendur og öðlast snilligáfu.Sumir segja að þessir fjórmenningar hafi hitt Legba á krossgötum og ætli að kveða hann í kútinn þetta kvöld..

 

Vinir Dóra

hafa verið í fararbroddi blústónlistar á Íslandi síðan þeir hituðu upp fyrir John Mayall árið 1989 og hafa haldið hundruði tónleika og reynt að bjóða upp á blús eins og hann gerist bestur. Guðmundur Pétursson er einn besti gítarleikari á Íslandi og það er hrein unun að heyra hann gera það sem hann gerir einna best af öllu sem er að spila blús með Vinunum. Vinir Dóra hljóðrituðu disk með blúsgoðsögninni Pinetop Perkins 1993, en hann fékk í fyrra Grammy verðlaun fyrir framlag sitt til tónlistar "Lifetime Achievement Award " .Pinetop er guðfaðir Vina Dóra í blúsnum.Þess má geta að Pinetop þykir diskurinn með Vinunum sín besta plata og kaupir hann af útgefanda í Chicago eintök til að selja á tónleikaferðum. Diskurinn Pinetop Perkins with the Blue Ice Band featuring Chicago Beau er enn á lista í  öðru sæti eftir 12 ár á www.cdmojo.com og orðin cult plata seld á 80$ notuð. www.pinetopperkins.com .

Hlöðver B. Jökulsson & fl.

Hlöðver hefur sett saman svolítið prógramm með kvæðum Kristjáns fjallaskálds ásamt félögum sínum Tómasi A. Ragnarssyni og Rúnari Þ. Þórarinssyni og verður það flutt á tónleikum Blúshátíðar í Reykjavík á Nordica, miðvikudagskvöldið 12. apríl."Ég var staddur inní kæliklefa Domino's Pizza á Grensásvegi, og vantaði texta við blúsaða melódíu sem ég var búinn að vera með á heilanum í allan dag, þegar ég fékk hugljómun og tók að syngja: Kveðið á sandi, " segir Hlöðver B. Jökulsson um tildrög þess að hugmyndin kviknaði um að syngja kvæði Kristjáns fjallaskálds Jónssonar í blús, en Kveðið á sandi er kvæðið góða sem allir þekkja: Yfir kaldan eyðisand. "Eftir að hafa fengið hugljómun, langaði mig að klæða Kristján í viðeigandi föt, og fannst mér blúsfötin hafa verið eins og klæðskerasaumuð utan á hann," segir Hlöðver.Kristján fjallaskáld lést 27 ára gamall laust fyrir aldamótin 1900 um svipað leyti og handan Atlantshafsins var að fæðast fólk, sem síðar átti eftir að verða goðsagnir í blúsheiminum, eins og Bessie Smith og Robert Johnson.
Kristján átti margt sameiginlegt með þeim, og ljóðin hans voru sprottin af sama meiði og blústextarnir. Handan hafsins sungu menn; “I got the blues..”, en hér orti Kristján; “berst mér negg í brjósti snautt..”, til að lýsa sinni mæðu, og vanlíðan.

"Ég held að vísur eins og Yfir kaldan eyðisand séu samtíða hverjum Íslendingi og Kristján bjó jafnframt yfir andstæðum sem einkenna okkar tíma. Kristján orti sig líka út úr kennikerfum 19. aldar og var á vissan hátt 20. aldar maður. Ég held reyndar að leiðin til nútímaljóðsins liggi frá Jónasi Hallgrímssyni í gegnum Kristján til Jóhanns Sigurjónssonar."1 Útisetur munu hafa farið fram á krossgötum að næturlagi, á mörkum mannlegs samfélags, reynt var að víkka út vitundina, virkja dulin sálarlífsöfl og sameina þau öflum hins heimsins, vekja tröll upp: máttarvöld óskynsemi og náttúru. ." tilvitnun Matthías Viðar Sæmundsson.


Blússveit Þóllýar skipar skemmtilegur bræðingur af hljómlistarmönnum sem koma úr ýmsum áttum og eru á öllum aldri. Í þessu líflega vímuefnalausu bandi leggja þau til hliðar fyrrverandi tónlistarstefnur. Þungarokkarinn, gospelsöngkonan og jazzarinn sameinast hér í leit sinni að rótunum. En sameiginlega rót sína hafa hljómsveitarmeðlimir fundið í trúnni á æðri mátt og blúsnum. Og blúshjartað mun flytja okkur rokkblúsaðan sálm svo eitthvað sé nefnt. En hljómsveitin fer mjög óhefðbundnar leiðir í lagavali og efnistökum.
Hljómsveitina skipa Þollý Rósmundsdóttir:söngur, Magnús Axel Hansen:gítar, Björgvin Óskarsson:gítar, Lovísa Sigrúnardóttir:bassi og Benjamín Ingi Böðvarsson: trommur.

The Bumcats er rokkabillýkántrýgospelblúsband sem stofnuð var í byrjun þessa vetrar og þreytir frumraun sína opinberlega á blúshátíð. Hljómsveitina skipa hjónin Tómas Ragnarsson og Esther Jökulsdóttir auk tengdafrændans Péturs S. Jónssonar á gítar og kjörsonanna Helga Egilssonar á kontrabassa og Snorra Páls Úlfhildarsonar sem flengir húðir. Hjónakornin syngja auk þess sem húsbóndinn þenur munnhörpuna og semur lög og ljóð á síðkvöldum. Rónakettirnir stefna ótrauðir að því að fá ljósastaur í Nashville og umferðareyju í Minsk nefnda í höfuð sér og útiloka ekki framboð til komandi sveitastjórnarkosninga.

Krummarnir undir forustu Hrafnkels ætla að taka flugið með Snorra, Magnúsi , Helga og Kristjáni Þetta eru ungir og efnilegir menn sem ekki eru ókunnugir blúsnum. Margir þeirra stunda nám við FÍH skólann og ætla að að koma á óvart með tónlist sinni og láta hefðir og lögmál víkja fyrir augnablikinu. Sönn ánægja að kynna þá til leiks.

Blúsmaður verður heiðraður Það stendur til að heiðra blúsmann   við setningu Blúshátíðar í Reykjavík um páskana  og gera að heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur  .   Sendið tilllögur hvern ætti að heiðra á netfangið  blues@blues.is  . Magnús Eiríksson var heiðraður 2004 og Björgvin Gíslason 2005 Miðasala á Blúshátíð í Reykjavík um páska fer vel af stað  . Miðaverði hefur tekist að stilla í hóf og ber að þakka það stuðningsaðilum , sem láta tónleikagesta njóta lágs miðaverðs og glæsilegrar Blúshátíðar í Reykjavík. Deitra Farr biður að heilsa  til Íslands og sagði" við Divurnar getum ekki beðið eftir að koma og syngja fyrir ykkur" . Andrea Gylfa er að frumsýna í kvöld og sagði í dag" það er ekkert smá fjör hjá mér um þessar mundir ,það verður ekkert smá gaman að koma og syngja á blúshátíð "

RESTAURANT

 

  Blúsmatseðill á VOX Restaurant

Bluesfestival menu VOX Restaurant

11.12. og 13. Apríl

Leturhumar

Volgur leturhumar með súrmjólkurfroðu, humarhlaupi,

grænmetissalsa og sítrónuolíu

Warm langoustine with sour milk-foam, langoustine jelly, vegetables salsa and lemon oil

Lamb

Lamb á fjóra vegu. Langtímaelduð Entrecote, létt steiktar lundir, lambatunga og skanki. Framreitt með dilli og kartöflufroðu

Lamb 4 ways. Entrecote, sautéed filled, lamb tongue and shank.

Served with dill and potato foam

Súkkulaði

Súkkulaði Tanarive með volgri súkkulaðisósu og hindberjum

Chocolate Tanarive with warm chocolate sauce and raspberries

 

5400. kr á mann

ISK 5400. per person

Borðapantanir á Blúshátíð í Reykjavík á VOX
Þeir sem ætla að tryggja sér  góð borð á Blúshátíð í Reykjavík geta haft samband við VOX en veitingasalir þeirra eru opnir gestum Blúshátíðar á hátíðinni. Sæti verða að sjálfsögðu fyrir alla gesti.
Veitingahúsið VOX á Hótel Nordica ætlar að bjóða uppá sérstakan matseðil í tilefni Blúshátiðar  hann er að finna á www.blues.is ,

Borðapantanir Reservations

vox@vox.is vox@vox.is

Sími: 444-5050 Tel: 444-5050

Gestir VOX fá frátekin borð á tónleikunum kl 21 um kvöldið.

_________

Endilega skráið ykkur á póstlita félagssins hér til hliðar .

Ef þú vilt koma fréttum á framfæri, eða einhverju öðru sem gæti verið áhugavert fyrir aðra blúsunnendur, endilega hafðu samband við okkur hér.

_____________________________

UPPSELT í ferðina


 

 

David "Honeyboy" Edwards á Íslandi 11.&12. nóv

Árið 2004 var "Honeyboy" að spila í Connecticut með Keith Richards í Rolling stones,

David "Honeyboy" Edwards einn sá besti og reyndasti Delta blústónlistarmaður heimsins kemur til landsins 10.Nóvember ásamt Michael Frank munhörpuleikara, útgáfustjóra Earwig records, eins virtasta blúsútgáfufyritækis í Chicaco.
Nýlega vann "Honeyboy" W.C Handy verðlaunin fyrir besta acoustic gítarista ársins.
Margverðlaunaðri heimildarmynd um "Honeyboy" sem var gerð fyrir 3 árum, og var tilnefnd til 17 verðlauna
verður sýnd 9.Nóvember á Ríkissjónvarpinu kl 22:20.


Árið 2004 var "Honeyboy" að spila í Connecticut með Keith Richards í Rolling stones, sem er mikill áðdáendi "Honeyboy".
David Edwards fæddist árið 1915 og er mjög reyndur í Blues, hann er enn að spila um allan heim og er mjög hress þrátt fyrir aldur, gera aðrir betur.


Robert Johnson spilaði með "Honeyboy" síðustu 2 vikurnar áður enn hann lést, þeir voru saman kvöldið örlagaríka þar sem RJ lést en engin getur útskýrt hvað olli látinu, Robert Johnson, sem var einn áhrifamesti Blústónlistarmaður sögunar. Hann dó 27 ára að aldri eins og margir tónlistarmenn sögunar(Kurt Cobain, Jim Morrison, Jimi Hendrix, Janis Joplin, Brian Jones. Stofnaði Rolling Stones)

Michael Pollock & Siggi Sig og sérstakur gestur Daniel Pollock einn af forsprökkum Utangarðsmönnum hita upp á þessum tónleikum, ásamt fleirum.
Það verða tvennir tónleikar, fyrstu verða í Grindavík á Lukku Láka 11.November), þar sem sérstökum gestum verða boðið og seinni tónleikarnir verða á Nasa 12.nóvember.

Miðasala:

Midi.is
&
TÓNASTÖÐIN ehf.
Skipholti 50d
105 Reykjavík
2.200 kr í forsölu

________________

Norðurljósablús á Hornafirði 2.-4. mars 2006

 

Sænskir blúsarar til Hornafjarðar

Gengið hefur verið frá því að sænska hljómsveitin Emil & the Ecstatics verða aðal gestir blúshátíðarinnar Norðurljósablús sem haldin verður á Hornafirði 2.-4. mars á næsta ári. Norðurljósablús er á vegum Hornfirska skemmtifélagsins en félagið hefur staðið fyrir tónlistarviðburðum á Höfn síðustu ár. Menningarráð Austurlands úthlutaði Hornfirska skemmtifélaginu styrk nú í vikunni til að halda Norðurljósablús og fleiri verkefni. Hátíðin er haldin í samvinnu við Blúshátíð Reykjavíkur.

Rjóminn af íslenskum blúsurum

Auk sænsku blúsaranna munu nokkrir af helstu blústónlistarmenn landsins koma fram á hátíðinni. Í haust eru fyrirhuguð námskeið fyrir unga sem aldna tónlistarmenn á Hornafiðri og munu þeir koma fram á hátíðinni. Einnig er stefnt að því að kynna blústónlistina í grunnskólunum á staðnum í tengslum við Norðurljósablús.

Ungir með gamlar rætur

Liðsmenn Emil & the Ecstatics eru kornungir en tónlist þeirra á djúpar rætur og blúsáhugamenn þekkja áhrif frá BB king og fleiri kunnum blúshetjum. Emil Arvidsson söngvari og gítarleikari hefur vakið athygli fyrir hráan og einlægan söng og gítarleik. Að baki hans er firnaþétt sveit og Johan Bendrik Hammondleikara fremstan í flokki. Sveitin mun á næstunni leika um alla skandinavíu, en einnig ú Hollandi Belgíu og Þýskalandi.

Norræn blúshátíð

Stefnt er að því að Norðurljósablús verði árviss viðburður og áhersla verður lögð á að fá norræna blústónlistarmenn til að leika á hátíðinni.

_____________

 

_________

Septemberblús

Rythma og Blúsfélags Reykjanesbæjar

 

1. September Kl 21.00 í Stapanum

Blúsband Tónlistarskóla Reykjanesbæjar (nemendur) opnar tónleikana

Blúsmaður ársins tilkynntur

Swingband Óskars Guðjónssonar

Leikur milli/stríðsára JAZZ

Gestasöngvari Hildur Vala

Miðaverð 2.500kr

 

2. September kl 22.00 í Stapanum

Blúsinn Rokkar með hljómsveitunum

MOOD

GoGo Blues

Kentár

Sem fá að auki til liðs við sig hinn óviðjafnanlega

Björgvin Gíslason gítarsnilling

Miðaverð 2.500kr

 

3. September á Ljósanótt kl 23.00 í Stapanum

Blúskompaníið

Maggi Eiríks og Pálmi Gunnars

Grinders

KK og gamla götubandið í góðum fíling.

Miðaverð 3.000kr

A.T.H. Hægt er að fá rauðan miða sem gildir á alla tónleikanaog fæst þá 1.500kr afsláttur.

Allir tónleikarnir verða haldnir í félagsheimilinu Stapa – Njarðvík.

Forsala miða hefst fimmtudaginn 18 ágúst hjá eftirtöldum aðilum

ÚR AÐ OFAN – Laugavegi 30a, Reykjavík

GALLERÍ – Hafnargötu 32, Keflavík

tölvupóstur RNB kkband@isl.is
____________

Blúshátíð á Ólafsfirði

Vel heppnuð hátíð í ár!!!

Ekki er hægt að segja annað en að helgin hafi verið góð, á annað þúsund manns sóttu hátíðina um helgina og verður það að kallast nýtt met hvað varðar aðsókn á blúshátíðina, vill Jazzklúbbur Ólafsfjarðar þakka öllum þeim sem lögðu fram hjálparhönd og þeim sem sóttu hátíðina sem og öllum þeim styrktaraðilum sem gerður þessa veislu að möguleika. Svo sjáumst við að ári...

Fréttir myndir og fleira á www.olafsfjordur.is/blues/

Mynd af miðnætursólinni eftir lokatónleika 9. júlí

 

________________________

Blúshátíðin á Ólafsfirði 7.8. & 9 Júlí

Fimmtudagur 7. júlí

Tónleikar í Tjarnarborg kl. 21.00

Í minningu Elvis Prestley.

Regína Ósk og hljómsveit

Friðrik Ómar Hjörleifsson
Ásamt 10 manna hljómsveit.

Föstudagur 6. Júlí

Tónleikar í Tjarnarborg kl. 21.00

Blúsliðar Ólafsfjarðar
Jón Már, Viktor, Atli, Alex, Helgi og Sonja.

Rakarabandið
Lúðvík, Jón Már, Viktor og Alex
Hljómsveitin XL
Gísli, Bragi, Hjölli, Rúnar og Haukur

Lísbet Hauksdóttir
og hljómsveit

Blúsmenn Andreu
Andrea Gylfadóttir söngur,
Guðmundur Pétursson gítar,
Haraldur Þorsteinsson bassi
Einar Rúnarsson píanó,
Jóhann Hjörleifsson trommur,

Laugardagur 9. júlí
13.00 Markaðstorg opnar.
Útigrill að hætti Blúsmanna:
grillaðar pylsur, kjúklingur, lambakjöt og kartöflusalat
og chilibaunir með ekta Texas grillsósu.

Uppboð á blúsminjagripum
Leiktæki fyrir börn
skemmtilegar þrautir
hestaleiga og fl.

Skemmtidagskrá á sviði fyrir sunnan Tjarnarborg

14.00 Blúsarar taka lagið fyrir markaðsgesti
14:30 Sungið og leikið með börnunum í bænum
15.00 Blúsarar taka lagið fyrir markaðsgesti
15:30 Sungið og leikið með börnunum í bænum

Tónleikar í Ólafsfjarðarkirkju kl. 16.30
Andrea Gylfadóttir & Ellen Kristjánsdóttir

syngja trúarlega tónlist frá Íslandi og Bandaríkjunum

Tónleikar í Tjarnarborg kl. 21.00

Sérsveitin
írsk þjóðlög
Pétur, Traust. Kristján og Jaan A

Roðlaust og Beinlaust
Björn Valur, Maggi, Gulli, Dammi, Pétur, Sævar og Stúlli

Borgardætur
Andrea Gylfadóttir, Ellen Kristjánsdóttir, Berglind Björk

Hljómsveitin Bykkja
Kjartan Valdimarsson píanó,
Guðmundur Pétursson gítar,
Jón Ólafsson bassi
Björgvin Ploder trommur
Sérstakur gestur Halldór Bragason.

24.00 Dansleikur
Hljómsveitin Tvöföld Áhrif
Sverrir, Beggi, Gulli og Kata.

 

Jassklúbbur Ólafsfjarðar var stofnaður í maí árið 2000 og vígður með rommi og hitaveituvatni. Stofnendur klúbbsins, með Kormák Bragason í fararbroddi, höfðu það
að markmiði að setja á laggirnar tónlistarhátíð sem myndi draga að gesti og yrði jassklúbbnum og bænum til sóma. Ólafsfjörður á sér langa tónlistarhefð og má segja að tónlistin sé stór hluti daglegs lífs í Ólafsfirði.Þar hafa margir sérlega efnilegir og góðir tónlistarmenn alið aldur sinn og
margir farið þaðan út í heim til að freista gæfunnar.
Píanó-og harmonikkuleikarinn Jón Árnason, sem lést á síðasta ári, hafði í hartnær 60 ár séð til þess að ekki skorti undirleik eða samspil, hvort sem það var fyrir leikfélagið, 17. júní, ættingja, harmonikkufélög eða aðrar uppákomur hér í firðinum.
Þessa hátíð okkar og komandi hátíðir verða tileinkaðar honum Jóni okkar.
Þó Jón hafi ekki verið beint bluesmaður... hafði hann yndi af góðri tónlist.
Markmið okkar með Blúshátíðinni í Ólafsfirði er að allir sem yndi hafa af góðri tónlist, láti sjá sig og skemmti sér með okkur Ólafsfirðingum.

Blúshátíðin á Ólafsfirði var í samstarfi við Blúshátið í Reykjavík og Blúsfélag Reykjavíkur

________________________

Blueskvöld á Cafe Rosenberg

Mood verður með tónleika föstudaginn 15. apríl
klukkan 23:00 á Café Rosenberg, Lækjargötu 2.
Frítt inn
. Ný heimasíða Mood er:
http://www.mood.is

________________________________________________

Blueskvöld á Cafe Rosenberg

Föstudaginn 1 apríl.kl. 22:30 spila

Mike Pollock, Siggi Sig og Gunni Erlings .

 

_________________________________________________

Blúshátíð í Reykjavík

þakkar öllum fyrir komuna og gott samstarf.

Án ykkar allra hefði þetta ekki verið hægt.

_________________________________________________

Blúshátíð þriðjudagur 22.3

Myndir Júlíus Valsson

Björgvin Gíslason var gerður að heiðursfélaga í Blúsfélagi Reykjavíkur á setningarathöfnini fyrir framlag sitt til blústónlistar á Íslandi.

Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari afhenti honum viðurkenninguna og sagði meðal annars " Oftast var ég að fara til þess að hlusta á goðið mitt sem brosti breitt með Gibson SG framan á vömbinni. Maður sogaði í sig hverja nótu af áfergju því aldrei klikkaði gítaristinn sem í mínum huga stóð samhliða þeim bestu erlendis. Sú skoðun mín hefur ekki breyst.Það var greinilegt hvert hann sótti efniviðinn í sólóin sem voru ættuð beint frá blúsnum enda sóttust þekktir blúsarar eins og Gatemouth Brown eftir nærveru hans seinna. Árum saman hefur einlægur blússpuni hans fengið hárin til þess að rísa á áheyrendum þegar hann hefur tekið þátt í blúskvöldum og blúshátíðum. Hver nóta kemur frá hjartanu og sama gildir um skoðanir hans á tilverunni. Hann gerir alltaf það sem hjartað býður honum þó svo að vitað sé að hann hagnist síður á því fjárhagslega eða á annan hátt. Hann er því blúsari af lífi og sál og gerir allt af tilfinningu og nákvæmni "

Borgin var troðfull á tónleikunum um kvöldið og góð stemning í húsinu. Smokie Bay blues band riðu á vaðið og voru feikilega þéttir. Þegar þeir höfðu lokið sér af tók hljómsveitin Kentár við með Björgvin Gíslason í broddi fylkingar. Gamla kempan sýndi og sannaði að hann hefur engu gleymt og aðrir meðlimir hljómsveitarinnar fóru einnig á kostum.

Frábær skemmtun, og fyrir þá sem misstu af kvöldinu þá tók Júlíus Valsson myndir sem eru Hér

Blúshátíð miðvikudagskvöld 23.mars 2005

Fyrsta kvöld Blúshátíðar var einstaklega vel heppnað og margir biðu spenntir eftir því að sjá KK og Grinders trylla lýðinn á miðvikudagskvöldið. Fljótlega var ljóst að uppselt yrði á tónleikana enda dagskráin ekki af verri endanum. Glænýir, ungir og efnilegir blúsmenn, þeir Danni og Jón Ingiberg voru fyrstir á sviðið og vottuðu Robert Johnson virðingu sína með nokkrum lögum við góðar undirtektir viðstaddra. Þetta var í fyrsta sinn sem þeir koma fram á þennan hátt og verður spennandi að sjá til þeirra í framtíðinni.

Næstir voru dúettinn Hot Damn! Sem skipaður er tveimur tónlistarmönnum sem hafa getið sér gott orð á öðrum tónlistarvettvangi en það voru þeir Smári “Tarfur” úr Quarashi og Jens Ólafsson eða Jenni úr Brain Police en þeir félagar sýndu að þeir vissu greinilega hvert tónlistin sem þeir spila yfirleitt á sér rætur að rekja, nefnilega í blúsinn.

Þá var komið að hinni skemmtilegu blússveit Mood sem sýndi það og sannaði að þeir eru komnir til að vera í blúsheiminum á Íslandi, vandaður og skemmtilegur flutningur.

Beggi í Mood

En að öðrum ólöstuðum náði kvöldið samt hámarki þegar KK steig á svið og kynnti með sér sína gömlu félaga í Grinders, þá Scott Alexander sem er betur þekktur sem Professor Washboard, Derek “Big” Walker og Þorleif Guðjónsson en þeir spiluðu á götum höfuðborga Evrópu seint á síðustu öld og hafa greinilega engu gleymt frá þeim ferli sínum. Prófessor Þvottabretti lék á als oddi með öll sín skringilegu hljóðfæri en hann virðist geta töfrað tónlist úr hverju sem er.

 

Troðfullur salurinn tók vel á móti þessum köppum og þeir léku listir sínar í tæpa þrjá tíma, áheyrendum til mikillar ánægju.

Þetta var annað frábært kvöld á Borginni og greinilegt að Blúshátíðin var komin vel af stað og hitinn frá Mississippi kominn í menn.

Myndir frá öðurm degi blúshátíðar!

Blúshátíð fimmtudagskvöld 24.mars

Strax um hádegi var fólk farið að bíða á Hótel Nordica í þeirri von að tryggja sér miða á tónleikana um kvöldið enda ekki ónýtt að sjá tvær blúsdrottningar, ólíkar eins og svart og hvítt, gera sitt besta á einum og sömu tónleikunum. Andrea Gylfadóttir og Deitra Farr höfðu greinilega mikið aðdráttarafl og uppselt var á tónleikana hálftíma eftir að formleg miðasala hófst, en miðar voru líka seldir í forsölu. Byrjað var að hleypa inn í salinn klukkan hálf níu og fylltist hann á nokkrum mínútum enda margir ákafir að berja listamennina augum og hlust.

Blúsmenn Andreu komu á sviðið rétt rúmlega níu og sýndu enn einu sinni að þeir eru blúsband á heimsmælikvarða og framvörður sveitarinnar, Andrea Gylfadóttir, var í hörkuformi og lék næstum ómennskar listir með röddinni einni saman.

Eftir stutt hlé sem flestir gestanna notuðu til að skerpa á veigum sínum komu þeir Halldór Bragason og Guðmundur Pétursson á sviðið og spiluðu saman nokkra sveitablúsa á gítar og kjöltugítar (Lapslide) við mikinn fögnuð viðstaddra.

Smám saman bættust aðrir meðlimir hljómsveitarinnar Vinir Dóra í hópinn og djömmuðu með um stund eins og þeim einum er lagið þar til Dóri kynnti til sögunnar gyðjuna frá heimaborg blússins, Chicago, Deitru Farr. Skemmst er frá því að segja að hún kom, sá og sigraði með lögum af nýrri plötu sinni og einnig nokkrum sígildum blúsum.

Tónleikunum lauk rétt fyrir miðnætti á skírdag

Deitra Farr og Dóri á skírdag

Blúshátíð föstudagskvöld 25.mars

Það voru margir sem langaði að hlusta á negrasálma að kvöldi föstudagsins langa, svo margir að miðar á tónleika Kammerkórs Hafnarfjarðar, Andreu Gylfadóttur og Deitru Farr runnu út eins og heitar lummur og uppselt var á tónleikana klukkustund áður en þeir hófust. Þá var hafist handa við að skrifa fólk á biðlista og rétt áður en tónleikarnir hófust var með góðum vilja og samstarfi allra tónleikagesta hægt að koma því svo fyrir að enginn þurfti frá að hverfa og stemmingin í troðfullri kirkjunni var góð blanda af eftirvæntingu og andakt svo sem hæfði tilefninu.

Kammerkórinn undir stjórn Helga Bragasonar söng fyrst eitt lag og svo flutti Ingólfur Hartvigsson, kórfélagi stutt erindi uppruna negrasálma. Síðan var kynnt til sögunnar tríó skipað þeim Kjartani Valdimarssyni á píanó, Jóni Rafnssyni kontrabassaleikara og Erik Quick á slagverk. Þá kom Andrea Gylfadóttir til liðs við kórinn og söng með honum nokkra negrasálma, svo undurvel að margir viðstaddra fengu tár í augun.

Í kjölfarið söng Deitra Farr nokkra þekkta sálma upp úr sálmabók afa síns sem hún hafði tekið með sér að heiman og hreif áhorfendur með sér bæði í rólega íhugun og banastuð þegar hún söng sálminn “This little light of mine” þannig að allir kirkjugestir voru farnir að klappa með. Kórinn söng svo annað lag og þarnæst tók Andrea við aftur og söng nokkur lög og sýndi svo ekki verður um villst hvernig negrasálmar og blús eru tengd órjúfanlegum böndum með ógleymanlegum flutningi sínum á “God bless the child”. Kammerkór Hafnarfjarðar stóð sig frábærlega, sem og tríóið og úr varð upplifun sem verður lengi í minnum höfð þar sem tónlistin réði ríkjum en tilefni dagsins og alvara voru þó aldrei langt undan. Eftir dynjandi lófatak áheyrenda tóku Andrea og kórinn lagið Were you there, sem fjallar um krossfestinguna og eftir það sleit Brynhildur Björnsdóttir , annar skipuleggjenda hátíðarinnar ásamt Halldóri Bragasyni, hátíðinni og vonaðist eftir að sjá sem flesta í dymbilviku að ári en skipulagningarvinna er þegar hafin.

Blúshátíð vill þakka öllum sem styrktu hátíðina með framlögum í hvaða formi sem er, einkum þó þeim sem komu á tónleikana og hrifust með.

Sjáumst að ári

 
 


Hægt að skrá sig á póstlistann á www.blues.is til að fá blúsfréttir einnig getið þið sent inn eitthvað sem ykkur kemur í hug. Hvetjið vini ykkar og áhugafólk til að skrá sig , styðjum íslenskan blús.Ef þú vilt fá blúsfréttir og fylgjast með því sem er að gerast í félaginu, getur þú skráð þig á póstlistann okkar með tölvupósti hér

_____________________________________________

.

 

Tryggið ykkur miða .

Blúshátíð í Reykjavík  2005

22 mars Hótel Borg kl 17.00

Setningarathöfn og blúsdjamm

 

22 mars Hótel Borg kl 21.00

Kentár
Björgvin Gíslason
Smokie Bay Blues Band með Pollock bræður í fararbroddi.

 

23. mars á Hótel Borg kl 21.00

Grinders
KK, Derrick "Big" Walker og Professor Washboard frá Bandaríkjunum,
Þorleifur Guðjónsson
Mood Berþór Smári gítar Ingi Skúlason bassi Friðrik Júlíusson trommur
Hot Damn!  Smári ”Tarfur” Jósepsson &Jens Ólafsson úr Brainpolice
Ungliðar blússins, Danni & Jón Ingiberg

 

24. mars skírdagur Nordica Hótel kl 21.00

Deitra Farr frá Chicago og Vinir Dóra,
Blúsmenn Andreu

 

25. mars föstudagurinn langi kl 20.00 í Fríkirkjunni í Reykjavík

Andrea Gylfadóttir, Deitra Farr, Kammerkór Hafnarfjarðar
og hljómsveit flytja negrasálma

 


Deitra Farr

_____________________________________________

Smokie Bay Blues band hefur verið starfandi síðan  2004  og burðarstoðir sveitarinnar eru Pollockbræðurnir Danni og Mikki sem hafa gert garðinn frægan í íslensku tónlistarlífi um áratuga skeið, meðal annars með Utangarðs mönnum. Þeir ætla að leika lög af væntanlegri plötu þeirra " Break the Bread ". Jens Hanson saxófónleikari kemur fram með þeim.

Kentár hefur löngu sýnt og sannað að þar fer eitt mesta stuðband á Íslandi. Þeim bætist mikill og góður liðsauki sem er gítargoðsögnin Björgvin Gíslason sem spilaði meðal annars með blúsmanninum Clarence "Gatemouth" Brown á áttunda áratugnum.

Hot Damn! er skipuð tveimur efnilegum blúsmönnum sem hafa gert víðreist með öðrum hljómsveitum en það eru þeir Smári “Tarfur” úr Quarashi og Jens Ólafsson, betur þekktur sem Jenni í Brain Police

Mood hafa stimplað sig rækilega inn í íslenskt tónlistarlíf að undanförnu með hverjum blústónleikunum á fætur aðra og er hér um  mjög efnilega sveit að ræða.


KK er óþarfi að kynna en hann sýnir á sér hliðar sem eru ekki nýjar en hefur verið sárt saknað í samspili við þá félaga sína Derrick Big Walker ,  Professor Washboard og Þorleif Guðjónsson í the Grinders. Sveitin kom hingað síðast sumarið 1989 og hélt þá ferna tónleika í stað einna vegan eftirspurnar. Efni sem þá var tekið upp kom út fyrir jólin á plötunni KK-upphafið en þetta er í fyrsta sinn sem sveitin kemur saman um árabil..

Blúsmenn Andreu eru ein vinsælasta blússveit landsins enda er forsprakkinn, Andrea Gylfadóttir, ein besta og virtasta söngkona þjóðarinnar. Hún sýndi það og sannaði á blúshátíð í fyrra að hún er drottning blússins á Íslandi og komust færri en vildu á tónleika þeirra í fyrra.

Vinir Dóra hafa verið í fararbroddi blústónlistar á Íslandi síðan þeir hituðu upp fyrir John Mayall árið 1989 og hafa haldið hundruði tónleika og reynt að bjóða upp á blús eins og hann gerist bestur. Guðmundur Pétursson er einn besti gítarleikari á Íslandi og það er hrein unun að heyra hann gera það sem hann gerir einna best af öllu sem er að spila blús með Vinunum. Vinir Dóra hljóðrituðu disk með blúsmeistaranum Pinetop Perkins 1993, en hann fékk nýlega Grammy verðlaun fyrir framlag sitt til tónlistar "Lifetime Achievement Award " .
Óskum honum til hamingju sjá www.pinetopperkins.com

Deitra Farr hefur hlotið fjölda verðlauna og komið fram á blúshátíðum um allan heim. Hún kom hingað til lands árið 1992 og  fór í tónleikaferð með Vinum Dóra og hljóðritaði með þeim lög á diskinn " Mér líður vel" . Þá var hún ung og efnileg en nú er hún orðin ein af bestu blússöngkonum heims. Hún er nýbúin að gefa út disk með frumsömdu efni og mun leika lög af honum á tónleikunum á hótel Nordica. Nánari upplýsingar um Deitru má finna á   www.deitrafarr.com

Kammerkór Hafnarfjarðar er sjálfstæður kór skipaður ungu fólki. Kórinn var stofnaður í byrjun ársins 1997. Síðan þá hefur hann eflst og er nú talinn með betri kórum sinnar tegundar hér á landi. Í nóvember 1999 gaf kórinn út geisladiskinn Gaudete! og hlaut hann frábæra dóma. Kórinn hefur ávallt leitast við að hafa efnisskrá sína sem fjölbreyttasta og hefur flutt veraldlega og kirkjulega kórtónlist allt frá miðöldum fram til nútímans auk annarrar tónlistar, til dæmis djass og þjóðlagatónlistar.  Nú í febrúar flutti kórinn Sacred Concert eftir Duke Ellington ásamt Kristjönu Stefánsdóttur og stórsveit. Kammerkórinn hefur af og til lagt land undir fót og meðal annars haldið tónleika í Vestmannaeyjum, Grafarvogi og Kaupmannahöfn. Stjórnandi er Helgi Bragason. Nánar  á  www.kammerkor.is

Reykjavík Blues Festival 2005

March 22nd at Hotel Borg 21.00

Kentár
Björgvin Gíslason
Smokie Bay Blues Band with the Pollock brothers.

 

March 23 rd at Hotel Borg 21.00

Grinders
KK, Derrick "Big" Walker and Professor Washboard
Þorleifur Guðjónsson
Mood Berþór Smári guitar Ingi Skúlason bass Friðrik Júlíusson drums
Hot Damn!  Smári ”Tarfur” Jósepsson &Jens Ólafsson from Brainpolice
young blues musicians, Danni & Jón Ingiberg

 

March 24 th , Nordica Hotel at 21.00

Deitra Farr and Vinir Dóra aka the Blue Ice band,
Blúsmenn Andreu

 

March 25 th Good Friday at 20.00 at the curch Fríkirkjan in Reykjavík

Andrea Gylfadóttir, Deitra Farr, Kammerkór Hafnarfjarðar
and band perform gospel songs.

More information and reservations available at www.blues.is and  bluesfest@blues.is

General admission: 1800 kr
Admission for first three evening concerts: 4000 kr


Deitra Farr

_____________________________________________

Smokie Bay Blues band has been playing since 2004.  The Pollock brothers Danni and Mikki have been prominent on the Icelandic music scene for over a decades in bands such as the Utangarðs men. They will be performing songs from their upcoming album "Break the Bread". Saxophone player Jens Hanson will be performing with them.

Kentár has long since proven their status as one of Iceland 's most entertaining blues bands. They will be joined by the guitar playing legend Björgvin Gíslason , who played with the Blues musician Clarence "Gatemouth" Brown in the 70's.

Hot Damn! Is made up of two promising Blues musicians who have been successful in other bands: Smári “Tarfur” from Quarashi, and Jens Ólafsson, better known as Jenni from Brain Police.

Mood has made its mark on the Icelandic music scene with recent blues concerts. This is a very promising band.


KK hardly needs introduction, but we'll see a side of him which has been sorely missed – his collaboration with fellow musicians Derrick Big Walker, Professor Washboard and Þorleif Guðjónsson in the Grinders . The group last came to Iceland in 1989 and played four concerts instead of the originally planned one. Recorded material from those concerts later came out on the KK album “Upphafið” or "the beginning" . This will be the first time that the group has played together for more then a decade.


Blúsmenn Andreu is one of the most popular Blues band in Iceland . Its lead singer Andrea Gylfadóttir is amongst the best and most respected vocalists in the country. At last year's Blues festival she proved once again that she's the “Queen of Blues” in Iceland , when she sang for a full house.


Vinir Dóra aka the Blue Ice band has been the leader in Blues in Iceland since 1989 when they opened for John Mayall. They have performed at hundreds of concerts and have always offered Blues at its best. Guðmundur Pétursson is one of the finest guitar players in Iceland and to hear him play the Blues with Vinir Dóra is pure pleasure. Bandleader Halldor "Blue Ice" Bragason is artistic director of the bluesfestival. In 1993 the Blue Ice band recorded a CD with the Blues master Pinetop Perkins, who recently received a Grammy "Lifetime Achievement Award" for his contribution to music.
Our congratulations to him! See more at www.pinetopperkins.com

Deitra Farr has received various awards and performed at Blues festivals around the world. In 1992 she visited Iceland and toured with Vinir Dóra. It was during this visit that she recorded the CD " Mér líður vel" with the Icelandic Vinir Dóra. At that time she was a talented young artist, today she is one of the best Blues vocalists in the world. Deitra has recently completed a CD " Let it go" with her own music and lyrics and will perform selections from this CD at her concert at Hotel Nordica. More information on Deitra can be found at: www.deitrafarr.com

Kammerkór Hafnarfjarðar is a choir made up of young musicians. The choir was formed in1997. Since then it has been considered one of the best of its kind here in Iceland . In 1999 the choir released the CD Gaudete! , which received raving reviews. The choir has performed a wide variety of music ranging all the way from music originating in the Middle Ages to contemporary music. In February the choir performed Duke Ellington's Sacred Concert along with Kristjana Stefánsdóttir. Conductor: Helgi Bragason. More at:  www.kammerkor.is

 

 

 

Blúskvöld á Klúbbnum við Gullinbrú

Hljómsveitirnar Kentár og Blúsþrjótarnir spila á Klúbbnum við Gullinbrú fimmtudagskvöldið 10. febrúar. Tónlistin hljómar frá kl. 21. Miðaverð 800 kr.

Heimasíða Kentár

________________________________________________

Beggi í Mood spilar á Café Kulture

Hverfisgötu 18, fimmtudaginn 27.janúar.
Leikið verður frumsamið efni í bland við hefbundinn blús. Tónleikarnir hefjast klukkan 22. Frítt inn.

Heimasíða Mood

________________________________________________

Mike Pollock , Sigurður Sigurðsson og gestir spila á Cafe Rosenberg við L ækjargötu

Fimmtd. 3 . Feb. Kl: 22. Ekkert rúllugjald ;)

________________________________________________

SMOKEY BAY BLUES BAND

Á GrandRokk, fimmtudaginn 2. des kl: 22:30
Aðgangseyrir 500 kr.

 

Blústónleikar á Kaffi List



Mood spilar á Kaffi List fimmtudaginn 21.október. Tónleikarnir hefjast klukkan 22. Ókeypis inn.

 

í samvinnu við Rythma og Blúsfélag Reykjanesbæjar.

Ljósanótt í Reykjanesbæ

2 – 4 september  

2. september

Ráin v/Hafnargötu

Megas og Súkkat – Megasukk

Breiðbandið hitar upp

Húsið opnar kl 21.00

Miðaverð 1.500 kr

 

3. september, kl 22.00 

Ráin v/Hafnargötu

Páll Rósinkrans og félagar.

Eric Clapton tribute.

Húsið opnar kl 21.00

Miðaverð 1.500 kr

 

3. september, kl 23,00  

Paddy´s, Hafnargötu

Blúsþrjótarnir

Miðaverð 800 kr

Forsala miða á staðnum

 

4. september, kl 22.00 

KK salur v/Vesturbraut

Vinir Dóra. Blús á bláum nótum.

Gestasöngvari: Rúnar Júlíusson.

Húsið opnar kl 21.00

Miðaverð 1.500 kr

 

3. september, kl 23.30 

Zetan v/Hafnargötu

R&B sveitin VAX

Húsið opnar kl 22.30

Miðaverð 1,000 kr

 

4. september, kl 23.30

Zetan v/Hafnargötu JAGÚAR

Í fyrsta skipti í Reykjanesbæ.

Húsið opnar kl 22.30

Miðaverð 1.700 kr

Rythma og Blúsfélag Reykjanesbæjar.

Sími 891-6406

Halldór Bragason fjallar um blústónlist og blústónlistarmenn sem höfðu áhrif á tónlistarsögu 20. aldar í nýrri þáttaröð á miðvikudagsmorgnum á Rás 1. Meðal þekktra blúsmanna sem kynntir verða eru Robert Johnson, Little Walter, Freddi King og Eric Clapton. Merkustu hljóðritanir þessara blúsmanna eru leiknar og rýnt í þjóðfélagslegt ástand í Bandaríkjunum samhliða þróun svartrar menningar og baráttu fyrir mannréttindum.

Þættirnir eru frumfluttir á miðvikudögum kl 10 15 og endurfluttir eftir fjögurfréttum á fimmtudögum.

 

Tónleikar

Duushúsum Reykjanesbæ

19 ágúst - kl 21.00
 
Í boði
 
Rythma og Blúsfélags Reykjanesbæjar
 
Rúnar Júlíusson
Halldór Bragason - blúsari
Breiðbandið
R&B sveitin vax
 
Við styðjum Þroskahjálp á Suðurnesjum
 
Léttar veitingar í boði
 
Café Duus
Kaffitár
Matarlyst
 
Aðgangseyrir kr 200 rennur óskiptur til Þroskahjálpar
 
Ekkert aldurstakmark
 
Húsið opnar kl 20.00
 
Ekki tekið við Debet eða Kredit kortum
 
Söfnunarbaukar verða staðsettir innandyra fyrir þá sem vilja styrkja Þroskahjálp enn frekar. Einnig er hægt að koma með tómar dósir og flöskur og gefa Þroskahjálp.
 
Reykjanesbær leggur okkur lið með aðgengi að Listasafninu -  Duushúsum

Tónleikar á Cafe Rosenberg

Fimmtudaginn 12 . ágúst.

Mike Pollock

Mun spila lög af nýútkominni plötu sinni World Citizen sem var gefin út í tilefni fimmtugsafmælis kappans.
Einnig mun hann spila uppáhaldslög með Hank Williams , Johnny Cash , Jagger & Richards og fleirum.
Síðan munu Danni Pollock og fleiri mæta á svæðið og spila órafmagnaðan blús eins og hann gerist bestur.

Ókeypis aðgangur

Kapparnir í Smokie Bay Blues Band þegar þeir spiluðu síðast á Cafe Rosenberg

Mynd: Júlíus Valsson

Smokie Bay Blues Band í banastuði á tónleikum á Grand Rokk síðastliðið laugardagskvöld.

Mynd Guðjón Ágústsson

 

Tónleikar

Smokey Bay Blues Band verður með tónleika á Kaffi Rosenberg, fimmtudaginn 29. júlí nk. Smokey Bay Blues Band er skipað bræðrunum Mikka og Danna Pollock, ásamt Gunnari Erlingssyni trommuleikara og Haraldi Þorsteinssyni bassaleikara. Eins og menn muna slógu þeir rækilega í gegn á Blueshátið Reykjavíkur í apríl sl. Tónleikarnir hefjast kl. 22

 

Blúsþrjótarnir og Luther Thomas á Gauknum

Þriðjudaginn 20 júlí munu Blúsþrjótarnir og Luther Thomas saxafónleikari halda tónleika á Gauk á Stöng.


Luther Thomas er fæddur í St. Louis í Bandaríkjunum en býr í Kaupmannahöfn og New York. Hann spilar reglulega beggja vegna Atlandshafsins og er að koma beint frá því að spila á Copenhagen jazzfestival.  

Luther hefur spilað með fjölmörgum þekktum og óþekktum tónlistarmönnum í gegnum tíðina og hefur verið óhræddur að feta ótroðnar slóðir í tónlistarsköpun. Árið 1981 spilaði Luther með hljómsveitinni Dizzazz, en hún gaf út hljómplötuna “Yo Momma” en þar mátti heyra”funky jazz rap” eitthvað sem hafði ekki heyrst áður og vakti mikli athygli.
Luther hefur t.d.  spilað með Black Artis Group(BAG), Human Arts Ensemble, Cecil Taylor, Jimmy Lyons og Art Blakey´s Jazz Messengers. Eins og sjá má á þessum lista  þá hefur karlinn komið víða við.

Luther spilaði í fyrrasumar með Blúsþrjótunum á tónleikum í Kristjaníu í Kaupmannahöf við góðar undirtektir. Þar blandaði hann saman blús og rappi, ótrúlega skemmtileg blanda.

Það verður enginn svikinn að því að mæta á Gauk á Stöng á þriðjudaginn og upplifa blúsinn með Blúsþrjótunum og Luther Thomas.

Nánari upplýsingar um Luther Thomas má finna á   www.lutherthomas.com

Staður: Gaukur á Stöng
Dagur: Þriðjudagur 20. júlí
Tími: Kl. 21-23
Verð kr. 1000

 

Blúshátíð á Ólafsfirði 25-26. Júní

www.olafsfjordur.is

Föstudagur 25.6 kl 21.00

Vinir Dóra ásamt KK Páll Rósinkranz & Kalli Bjarni

Dóri& KK ásamt ungliðum Ólafsfjarðar

24.00 Kalli Bjarni og hljómsveit

Dansleikur 

 Laugardagur 26.6 kl 21.00

Blúskompaníið með Magga Eiríks, Pálma Gunnars ,&  Gestum.

Dóri Braga & Gummi P. ásamt ungliðum Ólafsfjarðar.

XL frumflytja dagskrá

24.00 Mannakorn

Dansleikur 

14.00 Páll Rósinkranz & fl. taka lagið fyrir börn og unglinga á öllum aldri.

15.00 Blúsvinnustofa með Dóra Braga & Gumma P.

 

 

Blúsmenn Andreu

Á þriðjudags og miðvikudagskvöld þann 22. og 23. júní verða Andrea og Blúsmennirnir hennar í banastuði á Næsta bar við Ingólfsstræti, og er ætlunin að taka báða þessa tónleika upp til væntanlegrar útgáfu. Á dagskránni er fjölbreytt flóra blússins tekin og skekin að hætti Andreu og Blúsmanna. Tónleikarnir hefjast kl.22°° og aðgangseyrir er 500 kr.

 

"Þetta er bara blús"

Kristján Kristjánsson (KK) og Bill Bourne frá Kanada halda nokkra tónleika í Reykjavík og nágrenni frá og með 14. maí - 22. maí. Á tvennum tónleikum kemur fram með þeim færeyska þjóðlagasöngkonan Eivör Pálsdóttir.

Fyrstu tónleikarnir verða á Rosenberg Cafe í Lækjargötu 2. 14., 15., og 16. maí nk. kl. 22:00 (KK og Bill). Aðgangseyrir kr. 1.000. - (sími 551 8008)

í Stúdentakjallaranum 20. maí kl. 21.00 - Ásamt Eivöru Pálsdóttur

og lokatónleikar í Salnum Kópavogi laugardaginn 22. maí kl. 21:00, ásamt Eivöru Pálsdóttur - aðgangseyrir kr. 1.500

Bill Bourne
Þetta er í þriðja sinn sem Bill Bourne kemur til landsins frá Kanada, en þar er hann einn hæst mettni þjóðlagasöngvari landsins. Bill hefur hlotið margvísleg verðlaun, þar á meðal Kanadísku Grammýverðlaunin. Hann hefur gefið út fjölda diska, bæði einn og með öðrum og komið fram í öllum heimsálfum.

KK
KK er einn vinsælasti trúbadúr landsins. Spilar þar ekki síst inn í ljúfmannleg framkoma, góðar lagasmíðar og frábærir textar. Hann hefur selt yfir 100.000 plötur síðan fyrsta platan hans, Lucky One, kom út 1991. Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar; fjöldan allan af gull- og platínuplötur, og Íslensku Grammýverðlaunin.

Samstarfs þeirra KK og Bills hefur staðið í nokkur ár frá því Bill kom fyrst til landsins fyrir um fjórum árum. Nú hyggjast þeir stilla saman strengi enn á ný. Þeir koma fram bæði einir og svo sem dúett og verður áhugavert að heyra þá útkomu, sérstaklega þar sem báðir eru frábærir gítarleikarar og söngvarar. Báðir hafa þeir sinn sérstaka stíl. Fyrirhugað er að þeir félagar hljóðrita á meðan á veru Bills stendur.

 

Vinir Dóra

Tónleikar á Hótel Borg fimmtudaginn 20 maí kl.21.00

Síðast var uppselt tryggðu þér miða með því að panta á bluesfest@bluesfest.is

Á Blúshátið sýndu Vinir Dóra að blús er tónlist fólksins með því að bjóða uppá skemmtun af bestu gerð þar sem þátttaka gesta og áheyranda var í hávegum höfð og fullt var út úr dyrum. Vegna fjölda áskorana verða tónleikar með Vinunum á uppstigningardag 20. maí.

 

KK Blús Band á Hótel Borg

 fimmtudagskvöldið 6. maí stundvíslega kl: 21.00.

K.K. hefur á síðastliðnum 20 árum tjáð sig í anda helstu blúshöfðingja síðustu aldar svo sem:
Little Walter
Muddy Waters
Robert Johnson via Cream og Eric Clapton
Jimmy Reed
Fabulaus Thunderbirds
Johnny Winter
Johnny Copeland
Albert Collins
Albert King
og mun þetta kvöld bera keim af þeim.

Til liðs við sig hefur hann fengið valið lið blúsara.

Hljómsveitina skipa:
Trommur: Ásgeir Óskars
Bassi: Tommi Tomm Stuðmaður
Gítar: Sigurgeir Sigmundsson
Hammond: Þórir Baldursson
Gítar, Munnharpa, Söngur: KK

 

Blúsfélag Reykjavíkur og Blúshátíð í Reykjavík stóðu að

Blúshátíð í Reykjavík

sem er komin til að vera!

Blúshátíð vill þakka öllum fyrir komuna á Blúshátíð og þeim sem lagt hafa Blúshátíð í Reykjavík lið.

Blúshátíð í Reykjavík bluesfest@blues.is

Munið eftir að skrá ykkur á póstlista Blúsfélags Reykjavíkur hér til hliðar til að fá blúsfréttir í tölvupósti.

9.4. Fullt var út úr dyrum á lokakvöldi Blúshátíðar annað kvöldið í röð og enn einu sinni sýndu Vinir Dóra að blús er tónlist fólksins með því að bjóða uppá skemmtun af bestu gerð þar sem þátttaka gesta og áheyranda er í hávegum höfð. Einnig spiluðu þeir blús eins og hann gerist bestur.

 

 

 

 

Kalli Bjarni kom og söng nokkur lög og gestir tóku hraustlega undir með honum enda var frábær stemming á Hótel Borg.

 

 

Páll Rósinkranz söng nokkur lög með Vinum Dóra og sýndi að þar er á ferð alvöru blússöngvari.

 

 

 

 

8.4 Uppselt var á Hótel Borg miðvikudaginn 7.4.

Myndir Júlíus Valsson

 

 

 

 

 

 

 

Blúsmenn Andreu sýndu snilldartakta. Blúsdottninginn hefur sennilega aldrei verið betri enda er samdóma álit þeirra sem heyrðu að Andrea Gylfadóttir er löngu komin á heimsmælikvarða.

 

Þeir Blúsmenn , Guðmundur Pétursson á gítar, Jóhann Hjörleifsson á trommur og Einar Rúnarsson á Hammond fengu Mezzofortemanninn Jóhann Ásmundsson á bassa til liðs við sig

 

 

 

 

Fylgdu þeir félagar Andreu upp í hæstu hæðir töfraheims blústónlistar eins og hún gerist best.

 

 

 

 

 

Í lokin var frumkvöðull Blúshátíðar, blúsmaðurinn Dóri fenginn uppá svið við mikinn fögnuð viðstaddra..að þessu sinni án hattsins ......

 

Pollock bræður Danni og Mikki ásamt Gunnari Hrafnsyni á bassa og Gunnari Erlingssyni á trommur í  Smokie Bay Blues Band kynntu salinn upp með gömlum blúsum og var fengur að fá þá á hátíðina.

 

6.4. Fyrsta kvöldið á Blúshátíð var stórkostlega vel heppnað og góð mæting og menn fóru á kostum á sviðinu. Frábær byrjun á Blúshátíð sem lofar góðu um næstu kvöld. Blúskompaníið með þá Magga Eiríks og Pálma Gunnars í fararbroddi voru í banastuði.

Maggi og Pálmi í stuði 6.4

Góður rómur var gerður að leik Dóra og Gumma P sem opnuðu kvöldið að blúshætti frumherjana frá Missisippi Delta svæðinu

Gummi með sleðann á gítarnum 6.4

 

 

 

 

 

Strákarnir í Mood sýndu að ungu blúsmennirnir eru að á uppleið

Mood á sviðinu 6.4.

 

 

 

 

Opnunarhátíðin var í í beinni á Rás 2 þeirri öndvegisrás okkar landsmanna....og fólk þáði veitingar meðal annars bláan blúsdrykk sérlagaðan af barþjónum á Hótel Borg. Hið Íslenska Byssuvinafélag er sérstakur verndari blúshátíðar og settu þeir byssuvinir svip á opnunarhátíðina með sínar rauðu húfu..

Júlíus Valsson tók þessar frábæru myndir.

Blúshátíð í Reykjavík
Hótel Borg 6. 7. & 8. Apríl

6. Apríl kl 17.00  Setningarathöfn Blúsdjamm 

kl 21.00 Maggi Eiríks & Blúskompaníið, Dóri & Gummi P  Mood.

7. Apríl  kl 21.00  Blúsmenn Andreu  Smokie Bay Blues Band Mikki & Danny Pollock .

8. Apríl kl 21.00 Vinir Dóra Páll Rósinkranz & Kalli Bjarni Doug Lang

Eitt og annað um Blúshátíð 

  Blúshátíðir eru sjálfsagður hluti af menningarlífi allra betri borga hins siðmenntaða heims og löngu tímabært að Reykjavík hljóti eina slíka. Hátíðin verður haldin í hinum fornfræga gyllta sal á Hótel Borg dagana  6. 7. og 8. apríl . Dagskrá hátíðarinnar er vegleg og vönduð og mikið í hana lagt. 

  Sérstakur fengur er að því að Blúskompaníið sem er elsta starfandi blússveit landsins kemur saman að nýju á opnunarkvöldi hátíðarinnar með þá Magnús Eiríksson og Pálma Gunnarsson í fararbroddi.Ungliðarnir í Mood kynda upp fyrir þá kappa. Dóri og Gummi P verða með hluta af sveitablúsdagskrá sinni í anda frumherjanna frá óshólmum Missisippi árninar í Suðurríkjum Bandaríkjanna.

      Miðvikudagskvöldið stígur ókrýnd blúsdrottning Íslands á svið ásamt blúsmönnum sínum í Blúsmönnum Andreu en hún hefur fyrir löngu lagt Ísland að fótum sér.  Frumherjarnir Pollock bræður sem blúsuðu sig inn í hjörtu þjóðarinnar með Utangarðsmönnum  kynna nú til sögunnar glænýja sveit sína  Smokie Bay Blues Band . 

    Hátíðinni lýkur svo á 15 ára afmælistónleikum Vina Dóra á skírdag, en mönnum eru enn í fersku minni hinir rómuðu tónleikar Vinanna á árum áður á Hótel Borg. Blúskóngurinn Dóri Braga kynnir til blúsleiks nýja vini sína þá stórkostlega efnilegu blússöngvara Pál Rósinkranz og Kalla Bjarna Idolstjörnu sem sló svo eftirminnilega í gegn þegar hann vann íslensku Idol-keppnina með því að syngja blúslagið sívinsæla um Salvöru á villitryppinu (Mustang Sally) við mikinn fögnuð íslensku þjóðarinnar. Aðdáendur gítarsnillingsins Guðmundar Péturssonar verða heldur ekki fyrir vonbrigðum á hátíðinni því hann mun þenja gítarinn af sinni alkunnu snilld með hinum og þessum öll kvöldin. Sérstakur gestur hátíðarinnar er Doug Lang sem kemur alla leið frá Vancouver í Kanada og leikur frumblús á kassagítar.

með kveðju Blúsfélag Reykjavíkur og Blúshátíð í Reykjavík

 

Stofnfundur Blúsfélags Reykjavíkur og blúsdjamm aldarinnar.

Blúsfélag Reykjavíkur mun  verða formlega stofnað  á Kaffi
Reykjavík fimmtudaginn 6. nóvember 2003   kl 20.00 

  Dagskrá
  21 00 ávarp tilgangur og stofnun Blúsfélags Reykjavíkur kosin
  undirbúningsnefnd
  Kynntur hugmyndabanki og póstlisti ...umræður


  21 30 Blúsdjamm
  Maggi Eiríks og K.K. Vinir Dóra, Blúsþrjótarnir , Blúsmenn Andreu,Páll
  Rósinkrans.o fl blúsa ......blúsandi svífur yfir sálarlífið
  22 00 Félagi heiðraður

  22 05 Blúsdjamm

  Á fundinn munu mæta allir helstu blúsarar landsins, s.s.
  Heiðursfélagi nr. 1 verður útnefndur á fundinum.

  Aðgangur er ókeypis og eru allir sem vilja taka þátt í þessu velkomnir.

Undanfarna mánuði hafa áhugasamir aðilar staðið að ýmsum blúskvöldum og hefur það sýnt sig að mikill blúsáhugi er hér á landi og er sívaxandi.  Með stofnun Blúsfélags Reykjavíkur er
markmiðið að greiða fyrir framgangi blústónlistar á Íslandi og sameina blúsáhugafólk í eitt félag sem ætti að auðvelda
framgang tónlistarinnar.