Fréttir
 Tenglar
 Póstlisti
 Saga blúsins
 Blúsplötur
 Um félagið
 

 

 
 

 

Kaupa miða

 

BLÚSHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 2007

Þriðjudagur 3.apríl

  Nordica Hotel kl. 17, setning í samstarfi við Rás 2

Blúslistamaður heiðraður

Blúsdjamm

 

Stórtónleikar á Nordica Hotel kl 20  

KK & Frakkarnir sérstakur gestur Andrea

• Jolly Jumper & Big Moe frá Noregi

• Ungir og upprennandi blúslistamenn

 

Klúbbur Blúshátíðar á Domo frá kl 22  

Blúsjamm

• Ungir og upprennandi blúslistamenn

 

Miðvikudagur 4.apríl

 Stórtónleikar á Nordica Hotel kl 20

Kraftar alheimsins

  • Ronnie Baker Brooks og hljómsveit frá Bandaríkjunum

• 25 ára afmæli Kentár

• Ungir og upprennandi blúslistamenn

 

Klúbbur Blúshátíðar á Domo frá kl 22  

25 ára afmælishátíð Kentár og blúsjamm

• Ungir og upprennandi blúslistamenn

 

Skírdagur 5.apríl

Stórtónleikar á Nordica Hotel kl 20

Zora Young og the Blue Ice band

Lay Low og hljómsveit

• Ungir og upprennandi blúslistamenn

 

Klúbbur Blúshátíðar á Domo frá kl 22  

• Ungir og upprennandi blúslistamenn og fl.

 

Föstudagurinn langi 6. apríl kl 20

Fríkirkjan í Reykjavík

Sálmar og Gospel

Zora Young, Andrea Gylfadóttir, KK,Lay Low, Brynhildur Björnsdóttir og Goðsagnir Íslands

 

Klúbbur Blúshátíðar á Domo frá kl 22  

Lokapartý blúsjamm

Nánari upplýsingar á vefnum

 

 

Hljóð: Jón Skuggi

Hljóðkerfi frá Hljodx & Nordica Hotel

fyrirvari um breytingar eftir að bætast við.

Ronnie Baker Brooks á Blúshátíð í Reykjavík 2007

Meðal gesta á Blúshátíð í Reykjavík í Reykjavík í vor verður Ronnie Baker Brooks, ein skærasta ungstjarnan í amerískum blús. Brooks kemur hingað með eigin hljómsveit. Þá snýr Chicago dívan Zora Young aftur til landsins og syngur með Blue Ice bandinu, en hún var sannarlega stjarna hátíðarinnar í fyrra. Ronnie Baker Brooks og Zora Young eru bæði tilnefnd til Alþjóðlegu Blues Foundation verðlaunanna, hann í flokknum Besti samtímablúsmaður ársins, en hún í flokknum Besta blúskona ársins. Þar er Zora í liði með goðsögnunum Ettu James og Ruth Brown sem lést á síðasta ári. Hátíðin verður að vanda haldin í dymbilviku, dagana 3. – 6. apríl.

Ronnie Baker Brooks
Gítarleikarinn Ronnie Baker Brooks fæddist og ólst upp í amerískri blúshefð, sonur gítarleikarans Lonnie Brooks. Þótt Ronnie eigi djúpar rætur í hefðinni og hafi alist upp með bestu blúsmönnum heims, hefur hann ávallt farið sínar leiðir í tónlistinni. “Ég ólst upp með þeim allra bestu og í hvert sinn sem ég tek upp hljóðfærið, finnst mér ég verða að spila blúsinn af sömu heilindum og ástríðu og Buddy Guy, Muddy Waters, B.B. King og pabbi. En ég verð líka að setja minn svip á blúsinn. Enginn þessara meistara voru að endurtaka það sem blúskynslóðirnar á undan þeim gerðu,” segir Ronnie Baker Brooks. Það svipmót sem hann hefur lagt blúsnum til er blanda af hefð, blúsrokki, soul, hip-hop röddun og fönk rytma. Hann hefur unnið með pródúsentinum Jellybean Johnson, sem þekktur var að samstarfi sínu við Prince og Janet Jackson. Brooks stendur því með fæturna í hefðinni, en tónlist hans spannar engu að síður óm samtímans.

Zora Young

Zora Young er gestum Blúshátíðar í Reykjavík að góðu kunn, en hún var gestur hátíðarinnar í fyrra ásamt Deitru Farr og Grönu Louise. Zora kom líka á Blúshátíð í Ólafsfirði. Þessi orkumikla söngkona er eftirsótt og hefur komið fram með þekktum blúslistamönnum eins og Junior Wells, Jimmy Dawkins, Buddy Guy, Willie Dixon, Sunnyland Slim, Mississippi Heat, Paul deLay og B.B. King. Strax í barnæsku sinni var Zora Young farin að syngja og söng þá mest gospel í kirkjunni sinni í Mississippi. Og gospelsöngnum hélt hún áfram eftir að hún fluttist ung að árum til Chicago. Söngur hennar þróaðist gegnum R&B tónlist yfir í blúsinn. Zora Young hefur tilheyrt Chicagoblúsnum í 30 ár og er í dag virt um heim allan sem leiðandi afl og frumkvöðull. Zora Young hefur verið vinsæl í Evrópu jafnt sem heima fyrir og hefur til að mynda sungið á Ítalíu, í Þýskalandi, Belgíu, Svíþjóð, Frakklandi, Swiss, Grikklandi, Austurríki og fjarlægari stöðum eins og Tai Pei og Tyrklandi. Hún hefur gefið út plötur með öðrum en líka sólóplötur.

Zora Young og Blue Ice Band á blúshátíð í Árósum
Alþjóðlega Blúshátíðin í Danmörku www.djursbluesland.dk hefur boðið Zoru Young og hinu íslenska Blue Ice bandi að spila sem aðalnúmer þar strax að Blúshátíð í Reykjavík lokinni, og verða þeir tónleikar í Árósum laugardagskvöld fyrir páska, en í sumar lék Halldór Bragason í boði Zoru Young á Blúshátíðinni í Chicago sem er stærsta og virtasta blúshátíð heims.

Einnig hefur komið boð frá Blúshátíð í Niðarósi um að Blue Ice Bandið komi með 3 dívur þær Zora Young, Deitra Farr, Grana´ Louise og leiki í Noregi á Niðarósblúshátíðinni þann 28 apríl næstkomandi. sjá www.nidarosbluesfestival.com

Margt um að vera á Blúshátíð

Norska blúsdúóið Jolly Jumper & Big Moe sækir nú Blúshátíð í Reykjavík í fyrsta sinn. Þeir félagar sækja sinn stíl í hefðina, eins og hún var á fyrri hluta síðustu aldar og leika á gítar og munnhörpu. Þeir nefna áhrifavalda sína í tónlistinni þá Blind Blake, Mississippi John Hurt, Bo Carter, Leadbelly, Lightning Hopkins, Blind Willie McTell, Bukka White, Muddy Waters, Little Walter, og fleiri gengna snillinga.
Íslenskir gestir verða fjölmargir á Blúshátíð í Reykjavík í vor. KK, íslenska blúsdrottningin Andrea Gylfadóttir, Lay Low og fleiri verða þar í fararbroddi auk Blue Ice bandsins, en eins og venjulega er rík áhersla lögð á að kynna unga og upprennandi blúsmenn á hátíðinni. Tónleikar verða á Nordica hóteli þriðjudags, miðvikudags og fimmtudagskvöld kl. 20 og sálmatónleikar í Fríkirkjunni að kvöldi föstudagsins langa, en öll kvöldin verður starfræktur klúbbur Blúshátíðar á Domo í Þingholtsstræti, og hefst dagskrá þar að stórtónleikum loknum, eða um kl. 22. Að vanda á Blúshátíð í Reykjavík samstarf við Blúsfélag Reykjavíkur að heiðra blúslistamann, en í fyrra hlaut Andrea Gylfadóttir þann heiður.

Lay Low sigurvegari íslensku tónlistarverðlaunanna

Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, öðru nafni Lay Low var óumdeildur sigurvegari íslensku tónlistarverðlaunanna sem veitt voru 31.1 verður með tónleika á skírdag . Lovísa var valin söngkona ársins í flokki fjölbreyttrar tónlistar, flytjandi ársins í símakosningu meðan á útsendingu frá hátíðinni stóð í Sjónvarpinu og umslag plötu hennar, Please Don't Hate Me, var valið plötuumslag ársins.

Söngkona ársins
Lay Low

Plötuumslag ársins
Lay Low: Please Don´t Hate Me

Flytjandi ársins Lay Low.

Klassart

Flökkurónarnir ,

Tilviljun

þeir Kristján Óttar Klausen gítarleikari Fróði Ploder trommuleikari og bassaleikarinn Egill Jónsson eru ungir og upprennandi strákar í 9. og 10. bekk Hagaskóla. Að undanförnu hafa þeir verið að setja upp prógramm með lögum Stevie Ray Vaughan. Þeir hafa allir spilað í nokkur ár og eru mjög efnilegir. 

 

Ferlegheit voru stofnuð haustið 2005 á Akranesi og hafa verið að spila blús saman hér og þar síðan þá. Sveitin hefur vaxið úr fjögurra manna bandi í það að vera 7 - 8 manna blúshljómsveit í dag. Ferlegheitadrengirnir segjast spila eins mikið og þeir geta og reyna að koma eigin tónlist á framfæri eins og flestir, en í blúsnum eru átrúnaðargoð þeirra Stevie Ray Vaughan, B.B. king, T-bone Walker og Muddy Waters. Ferlegheitin Viðar Engilbertsson söngvari og gítarleikari, Tómas Ævar Ólafsson gítarleikari, bassaleikarinn Ársæll Ottó Björnsson, trommuleikarinn Pétur Ingi Jónsson, Kristján Ingi Arnarson sem leikur á rafmagnsorgel og píanó, Sigurður Rúnar Sigurðsson tenórsaxófónleikari og Andrés Már Harðarson altsax. Þeir eru allir í kringum 19 ára, flestir frá Akranesi og sveitini í kring. Þeir segjast elska blús og vilja spila hann eins mikið og þeir geta. Ferlegheit hafa meðal annars komið fram á blúskvöldi á Classic Rock í vetur.

 

Hot Dog eru þrír félagar á 21. aldursári: Benjamín Náttmörður Árnason söngvari, Baldur Tryggvason gítarleikari og söngvari og Hrafnkell Gauti Sigurðsson gítarleikari. Þeir segjast eiga marg sameiginlegt, en þó fyrst og fremst ástina á blústónlistinni “eins og hún leggur sig”, og hana hafa þeir spilað saman í mörg ár. Þeir eru allir í tónlistarnámi, tveir í FÍH og annar utan skóla, og hafa stúderað tónlist lengi. Þeir segja tríóið sitt í anda gamla skólans, 2 gítarleikarar og söngvari, en þó taki þeir allir undir í söngnum og grípi jafnvel í munnhörpu við og við til þess að koma blúsnum betur til skila.

 

Johnny And The Rest er fjögurra manna hljómsveit úr Reykjavík sem fæddist í köldum mánuði fyrir tæpum 2 árum. Bandið státar af því að hafa tvo gjörólíka aðalsöngvara sem báðir spila einnig á gítar, en liðsmenn eru: gítarleikararnir og söngvararnir Bragi Eiríkur Jóhannsson og Hrafnkell Már Einarsson, Guðmundur Þór Gunnarsson trommuleikari og Jóhann Jónsson bassaleikari. Hljómsveitin teigir anga sína í blúsinn, þar eru ræturnar sterkastar..með keim af djass-, rokk- og “sækadelik” fíling. Meðal áhrifavalda á Johnny And the Rest, má nefna John Lee Hooker, Canned Heat, John Mayall, Blind Willie Johnson, Jethro Tull, Jimi Hendrix, Muddy Waters, Led Zeppelin, Ali Farka Touré og fleiri og fleiri.

www.johnnyandtherest.com  

www.myspace.com/johnnyandtherest

 

Elliði Tumason mætir einn til leiks vopnaður söngrödd sinni og gítarnum. Hann er búsettur í Danmörku. Í febrúarmánuði lagði Elliði land undir fót og hélt til Berlínar, til þess að hljóðrita tónlist sína.

http://www.myspace.com/ettumason

 

M - blues project er heitið á blúsbandi Matthíasar Baldurssonar saxófónleikara. Matthías útskrifaðist 2006 úr kennaradeild FÍH og mun halda burtfarartónleika þaðan í mai 2007 þar sem hann mun flytja eigin lög, meðal annars með stórsveit. Hann hefur verið mjög iðinn við tónsmíðar og hlaut tvenn verðlaun í tónsmíðakeppni FÍH 2006. Með í blúsverkefni Matthíasar eru auk hans, Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikari, Eyjólfur Þorleifsson tenorsaxófónleikari, trommuleikarinn Jón Óskar Jónsson og Sigurdór Guðmundsson bassaleikari.

 

Angela Basombrio er kanadísk söngkona með langan tónlistarferil að baki. Hún er búsett á Skagaströnd. Angela hefur komið fram með Vinum Dóra, KK og húsbandi Kaffi Reykjavíkur.