Fréttir
 Tenglar
 Póstlisti
 Saga blúsins
 Blúsplötur
 Um félagið
 

 

 
 

 

Kaupa miða

BLÚSHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 2008

Þriðjudagur 18. mars

 Hilton Nordica Hotel kl. 17, setning í samstarfi við Rás 2

Blúslistamaður heiðraður

Blúsdjamm

 

Stórtónleikar á Hilton Nordica Hotel kl 20  

Magic Slim and the Teardrops frá Bandaríkjunum

•Jolly Jumper & Big Moe frá Noregi

og fl

 

Klúbbur Blúshátíðar á Rúbín frá kl 22  

Blúsjamm nánar síðar

• Ungir og upprennandi blúslistamenn

 

Miðvikudagur 19. mars

 Stórtónleikar á Hilton Nordica Hotel kl 20

  • The Yardbirds

• Nordic all star's blues band• Krister Palais  , Jolly Jumper & Big Moe frá Noregi, KK og fl 

• Bláir Skuggar: Sigurður Flosason, Þórir Baldursson , Jón Páll Bjarnason ,Pétur Östlund .

 

Klúbbur Blúshátíðar á Rúbín frá kl 22

 Blúsjamm nánar síðar

Ungir og upprennandi blúslistamenn

 

Skírdagur 20. mars

Stórtónleikar á Hilton Nordica Hotel kl 20

5 ára afmælishátíð.

Allir bestu í 5 ár Deitra Farr, Vinir Dóra, KK, Blúsmenn Andreu, Maggi Eiríks, Björgvin Gíslason, Bergþór Smári og fl.

• Tena Palmer frá Kanada & Gras

• Ungir og upprennandi blúslistamenn

 

Klúbbur Blúshátíðar á Rúbín frá kl 22  

5 ára afmælishátíð og blúsjamm nánar síðar.

Ungir og upprennandi blúslistamenn og fl.

 

Föstudagurinn langi 21. mars

Sálmatónleikar kl 20 Fríkirkjan í Reykjavík

Deitra Farr, Borgardætur & Riot, Tena Palmer

og fl.

Margt um að vera á Blúshátíð . Tónleikar verða á Hilton Reykjavik Nordica hóteli þriðjudags, miðvikudags og fimmtudagskvöld kl. 20 og sálmatónleikar í Fríkirkjunni í Reykjavík að kvöldi föstudagsins langa, en öll kvöldin nema á föstudagskvöld verður starfræktur klúbbur Blúshátíðar á Rúbín og hefst dagskrá þar að stórtónleikum loknum, eða um kl. 22. Að vanda á Blúshátíð í Reykjavík samstarf við Blúsfélag Reykjavíkur að heiðra blúslistamann, en í fyrra hlaut KK þann heiður.

Magic Slim er einn af lifandi goðsögnum Chicagoblúsins, með djúpar rætur í suðrinu. Hann fæddist í Mississippi 1937, lærði á píanó, en varð að hætta þegar hann missti fingur við bómullartínslu, barn að aldri. Þá sneri hann sér að gítarnum og fór að spila blús. Um tvítugt fetaði hann í fótspor margra fátækra suðurríkjamanna og fór til Chicago. Hann reyndi að koma sér á framfæri í blúsborginni nýju, en þótti ekki nógu góður. Hann fór aftur suður, staðráðinn í að finna sinn eigin tón í rótum tónlistarinnar. Tíu árum síðar, árið 1965 sneri hann aftur til Chicago með hljómsveit sína, The Teardrops, og nú voru mótttökurnar allt aðrar og betri. Magic Slim and The Teardrops urðu á fáum árum eitt af heitustu böndunum í blúsnum, og gáfu út hverja plötuna á fætur annarri. Þegar annar gítarleikari bandsins, John Primer hætti til að gefa sig að eigin sólóferli, spáðu ýmsir því að dagar Magic Slims og Teardrops væru á enda, því sándið í bandinu myndi ekki jafna sig eftir brotthvarf Primers. Raunin varð önnur og margar bestu plötur þeirra hafa komið út síðasta áratuginn. Það þarf ekki að fjölyrða um það að koma Magic Slim and the Teardrops á Blúshátíð í Reykjavík er einn af hápunktum hátíðarinnar frá upphafi og um leið stórviðburður í sögu blústónlistarinnar á Íslandi.

 

 

 

Hún er vagga ensku blúsbylgjunnar og gat af sér snillingana Eric Clapton, Jeff Beck og Jimmy Page, hljómsveitin Yardbirds er loks á leiðinni til Íslands og spilar á Blúshátíð í Reykjavík. Það er rétt að það má vissulega kalla Yardbirds vöggu ensku blúsbylgjunnar, en á sama tíma var bandið ein af fyrstu súpergrúppum rokksins, með því að vera ein mikilvægasta rannsóknarstofa síns tíma fyrir tilraunir með sérkenni og samruna blústónlistar, R&B og rokks. Niðurstöður gítarsnillinganna áðurnefndu úr þeim rannsóknum áttu eftir að gjörbreyta hugmyndum fólks um gítarinn og hlutverk hans í tónlistinni. Hljóðveröld gítarsins sá nýjar víddir, og nýjir möguleikar gítarleikaranna til þess að sýna virtúósíska takta breyttu ímynd gítarleikarans fyrir lífstíð.

The Yardbirds byrjuðu að spila saman upp úr 1960 undir hafninu Metropolis Blues Quartet í úthverfum Lundúna og voru fljótir að skapa sér nafn. Um tíma, eftir að Eric Clapton hætti í hljómsveitinni, voru þeir Jeff Beck og Jimmy Page báðir gítarleikarar hljómsveitarinnar. Örar mannabreytingar og ágreiningur um það hvert skyldi stefna í tónlistinni varð þó á endanum banabiti garðfuglanna, árið 1968. Árið 2003 var bandið lífgað við – með nýjum gítarleikara, platan Birdland kom út, og nú túra þeir heiminn og sýna veröldinni hvað það var sem gerði Yardbirds stórkostlega grúppu.

 

Drottning Chicago blúsins Deitra Farr

Deitra Farr hefur stutt Blúshátíð frá upphafi er ekki ókunnug okkur Íslendingum en við höfum áður fengið glatt tóneyrað og blússálina við ómældra listræna hæfileika hennar og tjáningarríkan söng. Núna heimsækir hún okkur enn og aftur.

Á tónleikum 2005 á föstudaginn langa söng Deitra Farr nokkra þekkta sálma upp úr sálmabók afa síns sem hún hafði tekið með sér að heiman og hreif áhorfendur með sér bæði í rólega íhugun og banastuð þegar hún söng sálminn “This little light of mine” þannig að allir kirkjugestir voru farnir að klappa með. . Ekki verður um villst hvernig negrasálmar og blús eru tengd órjúfanlegum böndum og úr varð í kirkjunni upplifun sem verður lengi í minnum höfð þar sem tónlistin réði ríkjum en tilefni dagsins og alvara voru þó aldrei langt undan . www.deitrafarr.com

bláir skuggar Hér er á ferðinni blúskennd tónlist úr smiðju saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar. Nýr kvartett Sigurðar, en hann skipa auk Sigurðar framverðir elstu starfandi kynslóðar íslenskra jazztónlistarmanna, þeir Þórir Baldursson á Hammond orgel, Jón Páll Bjarnason á gítar og Pétur Östlund á trommur.

 

Fréttir á www.blues.is miðasala www.midi.is