|
B.B. King og Gary Moore
Helgarferð til London og á tónleika B.B. King og Gary Moore í Birmingham 31. mars – 2. apríl
B.B. King hefur oft verið nefndur konungur blúsins en hann hefur spilað og hljóðritað síðan á fjórða áratug síðustu aldar. B.B. King er kominn yfir áttrætt og heldur í það sem hann sjálfur nefnir kveðjutónleikaferð um Evrópu í mars og apríl. Blúsgítargoðsögnin mun koma fram ásamt Gary Moore og saman munu þeir halda einstaka ryþma og blústónleika í Englandi. Er þetta í eina skiptið sem þetta þekkta tvíeyki mun koma fram á sömu tónleikum. Gary Moore mun spila fyrri hluta tónleikanna, áður en B.B. King tekur við. Haldið verður út á föstudegi, gist í eina nótt í London þar sem gefst færi á að spóka sig á götum höfuðborgar Bretlands áður en haldið er til Birmingham daginn eftir til að fara á tónleikana. Flogið heim á sunnudagskvöldi.
Nokkur orð um B.B. King.
Fæðingarnafn: Riley B. King
Hann ólst upp sem verkamaður á plantekru í Mississippi og lærði að spila gospeltónlist á gítar þegar hann var táningur. Seint á fjórða áratugnum fór hann að spila blús og fluttist til Memphis, Tennessee til þess að hefja tónlistarferil. Eftir vinsælar framkomur á klúbbum og í útvarpi, hljóðritaði hann fyrstu plötu sína Three O'Clock Blues (1951), sem fór strax á topp R&B listans. Hann og hljómsveitin hans voru í stöðugum tónleikaferðum, komu fram hundruð sinnum á ári og stækkuðu sífellt hlustendahópinn. Vinsældir hans jukust til muna á sjöunda áratugnum þegar hvítir hlustendur uppgötvuðu að rokkið ætti djúpar rætur í blúsinum. Gítarleikarar eins og Eric Clapton og Keith Richards lofsungu hann og B.B. King byrjaði að koma fram í rokk- og jazzklúbbum og náði jafnfram toppplötum, eins og Paying The Cost To Be The Boss (1968) og The Thrill Is Gone (1970). B.B. King hefur öðlast mikla virðingu gegnum árin, hljóðritað yfir 50 plötur, unnið 13 Grammy verðlaun auk fjölda annarra verðlauna og enn kemur hann fram fjórum til fimm sinnum í viku.
King er þekkur fyrir sitt auðkennandi hljóð og að kalla rafmagnsgítarinn sinn ”Lucille”.
King á næturklúbba í Memphis , Los Angeles og New York . Hann kallaði sig fyrst Beale Street Blues Boy, sem hann stytti svo í Blues Boy King og svo B.B.King. Árið 1996 gaf hann út sjálfsævisöguna, Blues All Around Me.
Ferðalýsing:
31. mars - Flug til London
Brottför frá Keflavík kl. 7.45 og lending á London Heathrow kl. 11.45. Ekið frá flugvellinum beint inn í höfuðborg Bretlands og á hótelið þar sem gist verður í eina nótt. Frjáls tími í London það sem eftir lifir dags.
1. apríl London – Birmingham og tónleikar BB King og Gary Moore
Í dag verður ekið frá London til Birmingham þar sem farið verður í stutta bæjarferð áður en farið er á hótelið. Tími til að rölta um bæinn áður en haldið er á tónleikana sem byrja kl. 19.30 og taka um 3 klst.
2. apríl Birmingham og flug heim um kvöldið
Eftir rólegheit í Birmingham verður haldið út á flugvöll og er brottför frá London Heathrow kl. 21.10. Lending í Keflavík kl. 23.10 að staðartíma.
Verð: 59.900 kr á mann í tvíbýli. *
Aukagjald fyrir einbýli er 9.500 kr.
Lágmarksfjöldi er 30 manns.
Innifalið í þátttökugjaldinu:
- Flug og flugvallaskattar
- Gisting í 2ja manna herbergi með baði, 1 nótt í London og 1 nótt í Birmingham.
- Ferðir frá London Heathrow á hótelið í London, til Birmingham og frá Birmingham til London Heathrow.
- Morgunverður
- Miði á tónleika BB King í Birmingham 1. apríl.
- Íslenskur fararstjóri
Ekki innifalið:
Hádegis- og kvöldverður. Aðrar ferðir en þær sem tilgreindar eru að ofan.

Bændaferðir , Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími 570 2790 Netfang: bokun@baendaferdir.is
* Með fyrirvara um skattabreytingar.
|